„Það snjóar enn í Kabúl og vísir menn segja að þetta sé snjóþyngsti veturinn í 20 ár. Göturnar, keðjurnar og braggarnir inn á compoundinu minna á gamla daga í Reykjavík,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, á Facebook-síðu sinni en hún er stödd í Kabúl í Afganistan.
Snjóþungt hefur verið undanfarið í Afganistan og hefur það haft áhrif á rafmagnskerfi landsins. Þessa stundina verður rafmagnslaust á mestu álagstímunum. Það er ekki alveg Ingibjörgu Sólrúnu að skapi. „Mér fannst alltaf sjarmi í rafmagnsleysinu þegar mamma eldaði á prímus við kertaljós en það er ekkert sjarmerandi við rafmagnsleysið hérna því enginn er prímusinn, engin upphitun og ekkert samband við umheiminn,“ segir hún.
Ingibjörg Sólrún lætur það hinsvegar ekki á sig fá og les bara í myrkrinu. „Þá er ekki annað að gera en að skríða upp í rúm með pödduna og kyndilinn og lesa með þessum dásemdartækjum í myrkrinu. Það er reyndar ekki svo slæmt.“ Líklega á hún þó við lestölvuna Kindle og spjaldtölvuna iPad en ekki raunverulegar pöddur og logandi kyndil.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Alin upp í flugvél
Ásdís Rán: „Skelfilegustu stundir lífs míns“
„Ofvirkir tvíburar klæddir einsog erfðabreyttir silungar“
Var 26 ár að klára lokaritgerðina
Ísbíllinn kom með vorið austur
