ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Kærastinn er draumur

Eva Mendes og Ryan Gosling eru sjóðheitt par
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:30 › 12. febrúar 2012

Leikkonan Eva Mendes segir það hafa verið draumi líkast að vinna með kærastanum Ryan Gosling við myndina The Place Beyond the Pines.

Leikkonan, sem er 37 ára, er í löngu viðtali í nýjasta tölublaði tímaritsins Marie Claire þar sem hún dásamar Gosling, 31 árs, sem leikara.

„Hann er draumamótleikari. Ég hef aldrei verið jafn fullnægð á listrænan hátt. Hann er yndislegur,“ sagði Eva en þvertók fyrir að ræða um samband þeirra á persónulegum nótum. „Hættu, hættu,“ sagði hún hlæjandi við blaðamann Marie Claire.

„Ég mun ekki kjafta frá neinu. Mér finnst óþægilegt að ræða þessi mál. Þau eru of persónuleg,“ sagði leikkonan sem vildi ekki heldur tjá sig um það hvort hún ætlaði sér að gifta sig og eignast börn í framtíðinni.

„Þetta eru svo leiðinleg umræðuefni. Ég er ekki manneskja sem ræðir þessi mál. Ég tala ekki um það sem gæti gerst í framtíðinni. Ég óttast að ef ég geri það þá verði það ekki að veruleika.“




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?