ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Dóttir Whitney Houston flutt á sjúkrahús

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:09 › 12. febrúar 2012
Mikið álag hefur verið á Bobbi Kristina en móðir hennar lést síðastliðna nótt.

Mikið álag hefur verið á Bobbi Kristina en móðir hennar lést síðastliðna nótt. Skjáskot af KCBS

Sjúkraflutningamenn fluttu í dag átján ára dóttur Whitney Houston, Bobbi Kristina Brown, á sjúkrahús. Ekki liggur ljóst fyrir af hverju flytja þurfti hana í skyndi á sjúkrahús en lögreglan í Los Angeles hefur staðfest við bandarísku sjónvarpsstöðina KCBS að Bobbi Kristina hafi verið flutt á sama sjúkrahús og móðir hennar, Houston, var flutt á síðastliðna nótt.

Aðeins er einn dagur liðin frá því að tilkynnt var um að móðir hennar hafi fundist látin á hótelherbergi sínu og er ljóst að Bobbi Kristina hafi verið undir miklu andlegu álagi í allan dag. Bobbi Kristina var stödd á sama hóteli og móðir sín en það var líklega í tengslum við Grammy verðlaunaafhendinguna sem fram fer í kvöld. Bobbi Kristina er dóttir Houston og fyrrverandi eiginmanns hennar Bobby Brown.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?