ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Vala Grand: „Ég er trúlofuð“

„Hann bað mín uppi í rúmi“
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:42 › 10. febrúar 2012
Vala Grand er í skýjunum með trúlofunina.

Vala Grand er í skýjunum með trúlofunina.

„Ég hélt við værum að fara að njóta ásta þegar hann bað mín uppi í rúmi,“ segir hin eina sanna Vala Grand í samtali við vefinn Flass.is en hún tilkynnti það á Facebook-síðu sinni nú fyrir stundu að kærasti hennar, Eyjólfur Svanur Kristinsson, hefði beðið hennar.

„Ég er trúlofuð. It finally happened“ skrifar Vala á Facebook áður en hamingjuóskunum tók að rigna inn og Vala var djúpt snortin.
„Thank u all er svo happy að einhver vill giftast mér aghh er svaka happy.“

Í samtali við Flass.is segir Vala að hún og Eyjólfur hafi legið upp í rúmi þegar hann bar upp spurninguna. Þar segir enn fremur að hann hafi fært henni 14 karata gullhring.

Vala og Eyjólfur opinberuðu samband sitt á Facebook í október.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?