ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Lögreglumaður hefur gefið blóð í 150 skipti

Sér þörfina fyrir blóðgjöf í starfi sínu
Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is
09:30 › 10. febrúar 2012
Gísli er hér að gefa blóðflögur. Hvers poka er beðið og því ljóst að þörfin er mikil.

Gísli er hér að gefa blóðflögur. Hvers poka er beðið og því ljóst að þörfin er mikil.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er stolt af lögreglufulltrúa sínum, Gísla Þorsteinssyni, og sagði frá því í gær að hann hefði farið 150 sinnum í Blóðbankann í þeim erindagjörðum að gefa blóð. Starfsfólk Blóðbankans kann svo sannarlega að meta gjafmildi Gísla færði honum konfektkassa vegna tímamótanna og létu þau orð falla að fáir hafi gefið blóð jafnoft og Gísli.

Sjálfur segir hann að honum finnist sjálfsagt að gefa blóð og honum finnist gott að fá að verða að liði. Hann segist ekki hafa nægilega mikinn pening á milli handanna til að gefa til góðgerðarmála en líti á blóðgjöfina sem sitt framlag. „Þetta get ég gefið og ég er feginn því að hafa heilsu til. Það þarf alltaf að vera mikið til af blóði. Þetta er auðvitað banki allra landsmanna. Sá eini sanni.“

Hann segir blóðgjöfina vera góða tilfinningu og stundum bíður fólk blóðgjafarinnar meðan hann er í Blóðbankanum. „Ég gef líka blóðflögur, þær fara aðallega til krabbameinsgjafa. Ég er svo heppinn að vera ríkur af þeim. Það er venjulega beðið þessara gjafa og mér líður því eins og ég hafi gefið einhverjum eitthvað afar dýrmætt, blóð er dýrmætara en gull,“ segir Gísli.
Gísli segist sjá þörfina fyrir blóðgjafir í sínu starfi. „Margir aðrir starfsmenn lögreglunnar hafa gefið blóð og munu gera það áfram. Við sjáum klárlega þörfina í okkar störfum.“

Gísli vill hvetja þá sem hafa heilsu til að gefa blóð og bendir á að blóðgjafar fái afar góðar upplýsingar um blóðhag sinn. „Ef að það er eitthvað að þá kemur það í ljós í blóðgjöf. Þannig fá blóðgjafar eitthvað í skiptum fyrir gjafmildi sína.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?