ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Sigmundur Davíð sér lífið í nýju ljósi

Formaður Framsóknarflokksins er nýbakaður faðir
08:45 › 10. febrúar 2012
Sigmundur Davíð og eiginkona hans eignuðust sitt fyrsta barn í janúar. Sigmundur býst við að föðurhlutverkið hafi breytt honum til frambúðar.

Sigmundur Davíð og eiginkona hans eignuðust sitt fyrsta barn í janúar. Sigmundur býst við að föðurhlutverkið hafi breytt honum til frambúðar. DV MYND/Eyþór

  • Stoltur faðir

    Stoltur faðirDV MYND/Eyþór

„Ég óttaðist að þegar ég myndi eignast barn yrði mér sama um allt annað - að drifkrafturinn myndi hverfa hvað varðar aðra hluti - en að verða pabbi hafði þveröfug áhrif.

Nú er mér enn meira í mun að breyta hlutunum og láta gott af mér leiða svo barnið mitt og öll önnur börn geti búið við betri aðstæður í framtíðinni,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson nýbakur faðir og formaður Framsóknarflokksins.

Sigmundur segir nýja hlutverkið eflaust eiga eftir að breyta honum varanlega. „Ég hélt kannski að ég yrði of mjúkur eftir þessa reynslu og vissulega hefur dóttirin haft þau áhrif. Manni finnst ekki beint passa að fara frá því að halda á nýfæddu barni yfir á þing að rífast við menn um hörðu málin.“

Lestu ítarlegt viðtal við Sigmund Davíð í Helgarblaði DV sem kom út í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?