Glamúrfyrirsætan Coco er þekkt fyrir að láta allt flakka og hefur oftar en ekki komist í slúðurfréttirnar fyrir uppátæki sín og þá kannski fyrst og fremst klæðaburð.
Nú er fyrirsætan vinsæla hins vegar komin í kastljósið vegna myndar sem hún birti á Twitter-síðu sinni sem mörgum fannst gríðarlega óviðeigandi. Þar má sjá Coco liggja allsnakta við hlið systursonar síns sem fékk að gista á heimili hennar. Coco hefur fjarlægt myndina af Twitter en svarað vandlætingarhersingunni fullum hálsi á síðu sinni.
„Skammist ykkar! Fyrst ég er nakin þykir ykkur þetta ógeðslegt, þetta er fullkomnlega eðlilegt,“ segir Coco í einni af fjölmörgum færslum sínum um málið.
Hún segir að klukkan hafi verið eitt eftir miðnætti og hún hafi verið að fara að sofa við hlið litla frænda síns, sem hún einmitt tók sjálf á móti við fæðingu. „Ég var nakin því þannig sef ég.“
„Þetta var falleg náttúrulega stund. Ég var ómáluð og bara að annast litla frænda minn og systir mín sá hversu fallegt þetta andartak var og tók myndina sjálf. Þegar ég horfi á myndina sé ég bara hversu mikið ég elska að verja tíma mínum með fjölskyldunni en fólk hefur snúið þessu upp í eitthvað viðbjóðslegt.“
Hér má sjá umræður ritstjórnar TMZ.com um málið þar sem skiptar skoðanir eru á málinu. Coco sjálft birtir þetta myndband á Twitter-síðu sinni:



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Jim Parsons kemur út úr skápnum
Emily snýr aftur
Of auðvelt líf
Transkona í 12. sæti
Hver hefur sinn djöful að draga
