ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Þyngdin er vandamál

Octavia Spencer gerir sér grein fyrir eigin óheilbrigði
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:23 › 1. febrúar 2012
Leikkonan hefur fengið verðlaun fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni The Help.

Leikkonan hefur fengið verðlaun fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni The Help.

  • Leikkonan er ein af fáum virkilega feitum leikkonum sem hafa náð að slá í gegn í kvikmyndaborginni.

    Leikkonan er ein af fáum virkilega feitum leikkonum sem hafa náð að slá í gegn í kvikmyndaborginni.

Leikkonan Octavia Spencer er orðin ein af skærustu stjörnunum Hollywood. Leikkonan, sem vakti verðskuldaða athygli í kvikmyndinni The Help, segist gera sér grein fyrir að hún sé allt of þung.

„Það er óheilbrigt að vera svona þung,“ sagði leikkonan, sem er 39 ára, baksviðs á verðlaunaathöfninni Screen Actors Guild Awards þar sem hún fékk verðlaun sem besta leikkona í aukahlutverki. „Ef það hefur safnast of mikið af fitu um mittið þá áttu við vandamál að stríða og ef þú verður of þung verðurðu minna metin fyrir vikið,“ sagði leikkonan sem vann til sömu verðlauna á Golden Globe hátíðinni.

Samkvæmt Octaviu mætti Hollywood vera opnara fyrir leikkonum af mismunandi stærðum og gerðum. „Það er jafn erfitt fyrir of grannar leikkonur að komast langt í bransanum og þær feitu. Þetta verður að breytast. Hins vegar, vil ég benda þeim grönnu á að þær yrðu mun ánægðari ef þær myndu borða meira. Ég verð allavega miklu úrillari þegar ég er svöng.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?