„Þetta er alltaf sárt en ég tek þessu bara. Er ekki þriðji hver Íslendingur að ganga í gegnum svona þessi misserin? Ég er bara ein af þeim,“ segir útvarpskonan Sigga Lund Hermannsdóttir sem fékk uppsagnarbréf þegar hún mætti til vinnu í morgun.
Sigga hafði starfað í níu ár hjá 365 og var verkefnisstjóri Létt-Bylgjunnar undir lokin. Hún segir uppsögnina hafa komið sér á óvart.
„Þetta kom bara eins og þruma úr heiðskíru lofti. Ég er varla búin að ná þessu ennþá en ég verð bara að horfa fram á veginn. Það opnast alltaf aðrar dyr þegar einar loka. Nú er síðan mín www.siggalund.is loksins að detta inn svo ég hef alveg nóg að gera.“
Sigga vakti mikla athygli í morgunþættinum Zúúber þar sem hún lét allt flakka ásamt útvarpsmönnunum Svala og Gassa. Eftir nokkur ár á Fm957 flutti hún sig yfir á Bylgjuna og Létt-Bylgjuna og var að eigin sögn alsæl með flutninginn. „Þetta er búið að vera afar lærdómsríkur tími með Bylgjustrákunum. Ég er reynslunni ríkari,“ segir Sigga sem vonast til þess að eiga endurkomu í útvarpi.
„Fjölmiðlar eru minn draumur - sjónvarp, útvarp, ég er til í allt. Ég á heima í fjölmiðlum, þar líður mér vel.“
Lestu lengra viðtal við Siggu í DV sem kemur út á miðvikudaginn.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Alin upp í flugvél
Ásdís Rán: „Skelfilegustu stundir lífs míns“
„Ofvirkir tvíburar klæddir einsog erfðabreyttir silungar“
Var 26 ár að klára lokaritgerðina
Ísbíllinn kom með vorið austur
