ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.2° 5m/s ESE

Steingrímur ver fjölskylduna

„Nægar eru fórnirnar sem aðstandendur og fjölskylda einstaklings í sviðsljósi verða að færa“ 
16:45 › 27. janúar 2012

Þrátt fyrir að Steingrímur J. Sigfússon hafi verið daglegur gestur á síðum dagblaðanna í gegnum árin hefur lítið borið á eiginkonunni Bergnýju Marvinsdóttur og börnunum fjórum.

Steingrímur segir þau hjónin hafa haldið fjölskyldunni meðvitað fjarri sviðsljósinu og enn frekar nú þegar hann hefur staðið í eldlínunni.

„Við höfum hins vegar verið samstillt í því að verja okkar einkalíf og heimili fyrir atganginum og hleypa ekki inn til okkar. Það hefur gengið vel og við höfum til dæmis ekki verið í glansviðtölum, hvorki í Séð og heyrt né Mannlífi. Nægar eru fórnirnar sem aðstandendur og fjölskylda einstaklings í sviðsljósi verða að færa.“ 

Lestu ítarlegt viðtal við Steingrím J. Sigfússon í Helgarblaði DV.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.