Flutt til Noregs Jóhanna Guðrún og kærasti hennar, Davíð Sigurgeirsson, freista nú gæfunnar í Noregi.
„Okkur líst bara mjög vel á,“ segir söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir sem er nýflutt til Osló í Noregi, ásamt kærasta sínum Davíð Sigurgeirssyni tónlistarmanni. Þau eru þó ekki að flýja land líkt og margar vegna kreppunnar. Þau eru einfaldlega í leit að nýjum tækifærum á stærri markaði en Ísland býður upp á.
Aðspurð hvort það sé eitthvað sem hún er fegin að vera laus við á Íslandi segir Jóhanna ekki svo vera. „Auðvitað mun ég sakna ég sakna Íslands alveg helling. Við fórum ekki út til að flýja neitt eða af því okkur finnst ekki frábært að vera á Íslandi.“
Fleiri tækifæri í Noregi
Jóhanna Guðrún er með norskan umboðsmann, sem hún hefur þekkt í fjölda ára, og taldi viturlegt að færa sig nær honum. Það er ein aðalástæðan fyrir því að parið ákvað að freista gæfunnar í Noregi. „Það eru tækifæri hér sem við ætlum að prófa og sjá hvort það gangi vel. Þetta er svona prufukeyrsla hjá okkur,“ útskýrir hún. „Við erum ung og það eru fullt af möguleikum hér. Ef maður nýtir sér þá rétt þá getur ýmislegt gerst,“ bætir hún við.
Þrátt fyrir að mörg tækifæri bjóðist á Íslandi þá er það takmarkandi, að sögn Jóhönnu Guðrúnar.
Hún bendir á að það sé mun auðveldara og ódýrara að ferðast frá Noregi til annarra landa frá Noregi heldur en Íslandi.
Nánar er fjallað um flutninga Jóhönnu Guðrúnar í DV í dag. Áskrifendur að DV.is geta lesið alla fréttina ef þeir ýta á meira. Í DV í dag má einnig finna ýtarlega úttekt á muninum á verðlagi og launum í Noregi og á Íslandi, en fjöldi Íslendinga eru fluttir til Noregs eftir hrunið
Meira »


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Alin upp í flugvél
Ásdís Rán: „Skelfilegustu stundir lífs míns“
„Ofvirkir tvíburar klæddir einsog erfðabreyttir silungar“
Var 26 ár að klára lokaritgerðina
Ísbíllinn kom með vorið austur
