ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Gillz vill flytja til Benidorm

Tekur upp Lífsleikni Gillz á sólarströnd
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:32 › 20. október 2011
Egill Einarsson kann að meta sól og sumaryl á ströndum Benidorm.

Egill Einarsson kann að meta sól og sumaryl á ströndum Benidorm.

Vöðvafjallið og sjónvarpsmaðurinn Egill Einarsson hefur dvalið á Benidorm undanfarna daga í góðu yfirlæti. Þar hafa staðið yfir tökur á nýrri sjónvarpsþáttaröð, Lífsleikni Gillz, þar sem hann kennir Íslendingum hvernig þeir geta orðið sannkallaðir heimsborgarar.

Óhætt er að segja að Egill hafi notið dvalarinnar til hins ýtrasta ef marka má uppfærslu hans á Twitter á mánudag. „Af hverju á maður ekki bara heima á Benidorm! Spá í að pakka niður dótinu mínu og flytja þangað,“ segir Egill.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?