ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Elin heimsækir Tiger á meðferðarheimilið

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:35 › 5. febrúar 2010
Elin sýnir svikulum eiginmanni sínum stuðning.

Elin sýnir svikulum eiginmanni sínum stuðning.

Eiginkona kylfingsins Tigers Woods, Elin Nordegren, hefur ákveðið að heimsækja eiginmann sinn en hann gengst nú undir meðferð við kynlífsfíkn í Hattiesburg í Mississippi.

Hin svikna eiginkona mun hafa gert sér ferð fyrir fimm dögum til að taka þátt í þeim hluta meðferðarinnar er snýr að þeim tveimur.

Reiknað er með að þau yfirgefi meðferðarheimilið saman nú um helgina.

Fregnir herma að Woods sé að undirbúa aðra brúðkaupsferð þeirra hjóna á milljarðasnekkju sinni.

Tiger vill víst sýna henni að hann sé breyttur maður eftir meðferðina.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?