Hún vill drottna Íslandi með Davíð Oddssyni, ætlar að halda trúarsamkomur á Bessastöðum og hótar að berja Spaugstofumenn fjalli þeir ekki um hana í þætti sínum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í athugasemdum Kleopötru Kristbjörgu Stefánsdóttur, forstjóra Gunnars Majoness, hvar hún slær á létta strengi undir nýjustu færslu Svarthöfða hér á DV.is. Majónesdrottningin grínast og hæðist þar að fréttaflutningi um hana undanfarna daga.
Eins og DV hefur greint frá á Kleopatra sér dyggan aðdáendahóp sem lítur á hana sem andlegan leiðtoga sinn. Sjálf hefur hún gert lítið úr áhrifamætti sínum en viðurkennir vinsældirnar. Hún virðist þó ekki vera par hrifin af Svarthöfða sem birtist í DV í gær og ákveður að slá á létta strengi í athugasemdakerfinu við færsluna hér á DV.is.
„Ég og Davíð Oddson munum ráða ríkjum, fyrst hér á landi en svo í öllum heiminum. Ég er hvort sem er alheimsleiðtogi nú þegar! Við Davíð munum svo hafa þjóna og einn verður sendileppurinn okkar en það verður einhver geðveikur ferðafíkill sem við sendum til útlanda til að ná í peninga handa okkur, hann verður helst að vera ofvirkur líka því þá mun hann afkasta miklu! Svo segi ég bara við núverandi forseta eftir að búið er að reka hann – hittumst í gylinu heima! Bestu kveðjur Kleopatra drottning, trúarleiðtogi og alheimsleiðtogi en væntanlegur forseti Íslands,“ skrifar Kleópatra í einni af fimm athugasemdum sínum.
Reka forsetann og halda trúarsamkomur á Bessastöðum
Í þeirri næstu segist hún ætla að búa með Davíð Oddsyni á Bessastöðum eftir að búið er að „reka forsetann“ og halda þar fínar „nautnaveislur og trúarsamkomur.“
„Sértrúasöfnuðurinn minn verður þar alltaf mættur og allir aðrir velkomnir til Bessastaða sem dýrka mig! Munið bara þeir sem dýrka mig! Hinir þ.e.a.s. allur sá fjöldi sem öfundar mig og voga sér þess vegna að tala ílla um mig, þeir eru þroskaheftir, geðveikir, lesblindir og sjónlausir! Sérstaklega sjónlausir! Ég vil taka það fram að á trúarsamkomunum á Bessastöðum svo og nautnaveislunum verður bara lesið upp úr bókinni minni Hermikrákuheimur, hverja einustu mínútu á milli þess sem fólkið fær að snæða en í öll mál verður bara boðið upp á Gunnars majones og Gunnars sósur. Aðdáendur mínir verið velkomnir og kjósið mig sem næsta forseta! Ég mun koma ykkur út úr kreppunni, ekki málið!“
Spaugstofan verður að fjalla um þetta
Kleopatra skorar líka á alla sem vilja kvænast henni að senda sér tölvupóst með mynd og persónulýsingum, eða þannig: „Látið vita um stjörnumerki, nærmynd af höndum og tanngarði, röntgen mynd af tönnum frá tannlækni! Ef þú ert ekki milljarðamæringur hafðu þá ekki fyrir því að senda mér mail! Kv. Kleópatra drottning og væntanlegur forseti Íslands. P.s. Tilkynning til Spaugstofu, notið þetta annars er mér að mæta og ég lem ykkur í klessu!“ skrifar hin dularfulla Kleópatra.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Jim Parsons kemur út úr skápnum
Emily snýr aftur
Of auðvelt líf
Transkona í 12. sæti
Hver hefur sinn djöful að draga
