fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Banvænar busavígslur

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 13. september 2018 11:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Bandaríkjunum eru margir af bestu háskólum heims, lærðar og virtar stofnanir. En bræðralagsmenning nemenda, sem nær aftur til nítjándu aldar, er alræmd fyrir óhóf og ofbeldi. Busavígslur hafa þótt sérstaklega varasamar þar sem ungmenni í ölæði eru neydd til að framkvæma lífshættulega gjörninga. Hundruðir busa hafa látist í slíkum vígslum eða aðdraganda þeirra.

Stuart Pierson

Sofandi á lestarteinum

Eitt óhugnarlegasta busunar dauðsfall átti sér stað þann 28. október árið 1905 í Ohio fylki. Nýneminn Stuart L. Pierson innritaðist í Kenyon háskólann og vildi ganga til liðs við bræðralagið Delta Kappa Epsilon eins og faðir hans, auðjöfurinn Newbold Pierson.

Newbold ætlaði að vera viðstaddur busunina en tafðist og Stuart missti svefn af áhyggjum. Bræðralagsmennnirnir fóru með hann inn í skóg eitt kvöldið og skildu hann eftir. Morguninn eftir fannst hann látinn á lestarteinum eftir að lest hafði keyrt yfir hann.

Sagt hefur verið að Stuart hafi verið bundinn við teinana en engar sannanir eru fyrir því. Að öllum líkindum hefur hann einfaldlega sofnað á teinunum. Lestarstjórinn sem keyrði yfir hann sá ekkert í myrkrinu og varð aldrei var við neitt óvenjulegt í ferðinni.

Mikið var skrifað um málið í dagblöðum þess tíma og bræðralagsmenn úthrópaðir sem morðingjar. En enginn var kærður og sannleikurinn mun sennilega aldrei koma í ljós. Í dag er Pierson minnst með bálkesti í námunda við dánarstaðinn.

 

Raflost í blautum nærbuxum

Hinn nítján ára gamli Nolte McElroy lést í busavígslu í Texas háskóla í Austin borg þann 30. september árið 1928. McElroy, sem talinn var efnilegur ruðningsleikmaður, gekk undir vígslu hjá bræðralaginu Delta Kappa Epsilon.

Búin var til þrautabraut fyrir nýnemana til að komast í gegnum og voru þeir aðeins klæddir í blaut nærföt. Ein þrautin var að skríða undir dýnugorma sem tengdir voru við rafmagn. Bræðralagsmennirnir töldu þetta óhætt þar sem nærri tvö hundruð busar höfðu skriðið þarna undir yfir fimmtán ára tímabil.

McElroy komst hins vegar í snertingu við gormana og fékk í sig mikinn straum. Hlægjandi áhorfendurnir þögnuðu þegar McElroy féll í dá og lést hann fimmtán mínútum síðar. Eldri bræðralagsmenn Delta Kappa Epsilon lofuðu að hætta með slíkar þrautir í framtíðinni.

Michael Davis

Barinn til dauða

Í bræðralagsvígslum hefur það verið til siðs að berja busana í heljarviku og í busavígslunum sjálfum, oft með kylfum eða árum. Oft eru þeir barðir á rass eða læri en stundum annars staðar á líkamanum.

Michael Davis, nemi í Southeast Missouri háskólanum, var laminn til dauða þann 14. febrúar árið 1994 þegar hann gekkst undir vígslu hjá bræðralaginu Kappa Alpha Psi.

Davis var laminn alls staðar á líkamanum þar til hann missti meðvitund. Þá var hann hins vegar ekki færður á sjúkrahús heldur heim til sín og lagður í rúmið. Davis vaknaði aldrei úr rotinu og lést af völdum áverkanna. Hann var marinn á öllum búknum og höndunum, rifbeinsbrotinn, með skaddaða lifur og heilablæðingu.

 

Fannst á botni stöðuvatns

Hinn átján ára Chad Smith, lést í busavígslu bræðralagsins Kappa Sigma í Miami háskóla þann 4. nóvember árið 2001. Þar var til siðs að láta busa stökkva út í stórt stöðuvatn í námunda við borgina.

Chad drakk mikið magn áfengis, eins og gengur og gerist í slíkum vígslum, og stökk síðan út í ískallt og djúpt vatnið. En eldri bræðralagsmenn vildu ekki leyfa honum að synda strax að landi heldur neyddu þeir hann til að synda lengra út á stöðuvatnið.

Hann var mjög drukkinn og þegar hann var kominn um tíu metra út á vatnið fann hann fyrir miklum svima og kallaði á hjálp en fékk engin svör. Hann hvarf í vatnið og drukknaði.

Chad fannst á botni vatnsins næsta dag og fjölskylda hans lögsótti bræðralagið. Kappa Sigma var dæmt ábyrgt fyrir dauðsfalli Chad og var gert að greiða fjölskyldunni rúmlega tólf milljónir dollara, eða næstum einn og hálfan milljarð króna.

Matthew Carrington

Féll í krampakasti

Ein busun sem fór úr böndunum var í California State háskólanum 2. febrúar árið 2005. Vikan fyrir vígslu er kölluð heljarvika af nemendum enda eru nýnemar þá látnir gera miður skynsama og heilsusamlega hluti.

Matthew Carrington vildi komast inn í Chi Tau bræðralagið og ein áskorunin í heljarviku var að gera armbeygjur í kjallara bræðralagshússins. Ískalt var í kjallaranum og gólfið flóð í óhreinu vatni. Að auki voru Carrington og aðrir nýnemar neyddir til að drekka mikið magn vatns úr stórum brúsum og köldu lofti var blásið á þá með viftum.

Eftir nokkra stund byrjðu nýnemarnir að æla og misstu þeir stjórn á þvagi sínu. Að lokum féll Carrington í gólfið í miklu krampakasti en eldri bræðralagsmenn brugðust ekki við. Carrington féll loks í dá og lést vegna mikilla bólgna í heila og lungum.

Eftir andlát Carrington voru sett lög í Kalforníu, nefnd lög Matts, sem gera saksóknurum kleift að lögsækja bræðralagsmenn sem valda dauða eða alvarlegum slysum með busunum.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar