Fimm Íslendingar á aldrinum 19 til 24 ára, störfuðu á samyrkjubúinu Shamir á Gólanhæðum þegar stríðið braust út og voru bardagar þar um kring mjög harðir.
Gerð var árás á Shamir og voru Íslendingarnir fluttir í loftvarnarbyrgi. Töluverðar skemmdir urðu á húsum en ekkert mannfall í það sinn.
Erfiðlega gekk að koma Íslendingunum, bæði þeim sem störfuðu í Shamir og í öðrum samyrkjubúum, því að flugsamgöngur lágu niðri. Hafði danska sendiráðið loks milligöngu um að koma fólkinu heim.