fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Nafnlaus tölvupóstur olli usla í aðdraganda biskupskjörs

Kristinn H. Guðnason, Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
Sunnudaginn 11. nóvember 2018 09:00

Karl Sigurbjörnsson Skipaði prestum að hætta sakbendingum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árið 2011 urðu mikil innanhússátök innan kirkjunnar vegna nafnlausra hótunarbréfa sem bárust til þriggja presta. Voru þau send úr netfangi sem eignað var huldumanninum Eðvaldi Eðvaldssyni. Ljóst var að sendandinn þekkti vel til innviða kirkjunnar og var að öllum líkindum prestur. Málið var kært til lögreglunnar á sínum tíma en fór ekki lengra vegna þess að það var ekki talið vera nógu alvarleg hótun til að rannsaka frekar. Þolandanum sem kærði fannst það mjög miður enda pósturinn mjög rætinn.

Þessi bréf hafa verið sett í samhengi við kjör til biskups en Karl Sigurbjörnsson var á þessum tíma að hætta eftir mikla gagnrýni vegna meðhöndlunar á máli forvera síns, Ólafs Skúlasonar. Prestarnir þrír höfðu allir gagnrýnt yfirvöld kirkjunnar fyrir það hvernig tekið var á málinu. Tveir af þeim voru sterklega orðaðir við embætti biskups og fóru loks í framboð árið 2012.

Þegar prestar voru farnir að kalla aðra til ábyrgðar fyrir póstinn sendi Karl boð um að sakbendingu yrði hætt og var málið þaggað niður, mörgum til ama. Hvorugur frambjóðandinn sem fékk bréf frá Eðvaldi Eðvaldssyni náði í aðra umferð biskupskjörs. Allir þrír búa nú erlendis.

Örn Bárður Jónsson Skrifaði pistil í Fréttablaðið sem vakti reiði „Eðvalds“.

Séra Örn sakaður um að „rýma sviðið“

Málið hófst á þjóðhátíðardaginn árið 2011 þegar séra Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í Neskirkju, fékk tölvupóst frá netfanginu edvaldedvaldsson@gmail.com sem einkenndist af mikilli vandlætingu. Virtist bréfið skrifað sem viðbragð við grein Arnar í Fréttablaðinu þann sama dag þar sem Örn gagnrýndi forseta kirkjuþings og séra Karl Sigurbjörnsson vegna viðbragða við skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþingsins um vinnubrögð við meðferð kynferðisbrota.

Á þessum tíma var mál séra Ólafs Skúlasonar, forvera Karls í embætti, í hámæli og þáttur Karls í því máli. Fjölmargar konur stigu fram og lýstu kynferðislegri áreitni og ofbeldi Ólafs í gegnum tíðina, þar á meðal dóttir hans, og var Karl harðlega gagnrýndur fyrir að hafa ekki tekið á þeim málum. Árið 2011 var Karl á leiðinni úr embætti og biskupskosningar í aðsigi. Í tölvupóstinum stóð meðal annars:

„Ég veit að þú hefur í samræðum við fólk sem ég þekki haft orð um að þú ættir erindi á biskupsstól. Ber að skilja þessa grein þannig að þú þurfir að rýma sviðið svo þú komist að? Aldrei hefði ég trúað því á æðsta kennimann Frímúrarareglunnar að hann gengi í lið með Sigríði Guðmarsdóttur sem virðist vera æðsti prestur haturs og hefndar á Íslandi.

Sr. Karl mun ekki sitja lengi. Hann hefur lýst því yfir. Þið getið ekki unnt honum að fara í friði eftir að nauðsynlegar úrbætur hafa verið gerðar á skipulagi kirkjunnar.

Dettur þér í hug að allir rýtingarnir sem þið prestar berið jafnan fari ofan í skúffu ef Sr. Karl er hrakinn burt og einhver glitstakkur kosinn í staðinn?“

Í bréfinu var enn fremur sagt að sendandi hefði atkvæðisrétt í biskupskosningum og að hann óttaðist að kirkjan liðaðist í sundur fljótlega vegna sundurlyndis og blindum metnaði klerkastéttarinnar.

„Ég er ekki viss um að venjulegt kristið fólk vilji vera í svona liði. Til hamingju með þjóðhátíðardaginn og þitt framlag til dagsins. EE“

 

Auga fyrir auga og allt það

Degi seinna fékk séra Kristín Þórunn Tómasdóttir, héraðsprestur í Kjalarnesprófastsdæmi, sendan tölvupóst frá téðum Eðvaldi og var hann öllu rætnari og með kynferðislegum undirtón. Í póstinum var sagt að hann væri viðbragð við grein Kristínar sem birtist á svokölluðum prestalista. Í pósti Eðvalds stóð:

„Ég hélt að þú værir ekki jafn heiðin og sumir aðrir félagar okkar þar (á prestalistanum). Heiðin í þeim skilningi að þrá blóðfórn til að friðþægja lýðinn. En nú veit maður að þig þyrstir í blóð. Þetta hefði maður svo sem átt að vita miðað við hvernig þú hefur komið fram við presta í prófastsdæminu.“

Enn fremur:

„En fyrirgefðu þú hefur ekki unnið sem prestur er það. Þú ert einn best menntaði ritari sem um getur. Ritari í „Kjalarnesbiskupsdæmi.“ Varðhundur prófasts sem vilt ekki nein opin skoðanaskipti á fundum í héraði þar sem þú skráir fundargerðir. Þetta er búið að vera kósí hjá þér er það ekki. Margar utanlandsferðir á kostnað héraðssjóðs. Ekki aðeins fyrir þig heldur fyrir þig og þína elskhuga sem gjarnan koma til að taka myndir.“

Enn fremur:

„Nú ert þú í hópi þeirra sem eru með rýtinginn á lofti. Dettur þér í hug ef ykkur tekst að slátra Karli að rýtingarnir verði allir lagðir til hliðar? Nei það verða bara aðrir með þá og beita þeim á þá sem þarf að hefna sín á fyrir víg Karls.

Er ekki betra að lofa karlinum að halda ræðu á næsta kirkjuþingi, taka þátt í að koma breytingum í farveg og ganga svo út uppréttur. Verður þá ekki minni ástæða til bræðravíga og aðeins meiri von um málefnalega kosningabaráttu um embætti biskups. Kannski gætum við sameinast um góða konu.“

Pósturinn var langur, ítarlegur, rætinn og persónulegur. Í lokin stendur:

„Ef þú ert að velta því fyrir þér af hverju ég skrifa ekki undir nafni þá er einföld ástæða fyrir því. Ég þarf að sækja stuðning frá stað þar sem þú hefur áhrif og ég óttast hefnd þína. Mun tjá mig síðar beint við þig. Sennilega þegar uppgjör hentar þér ekki og ég finn hjá mér þörf til að viðra mig. Þú manst. Auga fyrir auga og allt það.“

 

Þóttist vera í Vantrú

Þriðji presturinn fékk tölvupóst frá Eðvaldi á þessum sama tíma, séra Sigríður Guðmarsdóttir í Grafarholtskirkju, sem er kölluð „prestur haturs“ í báðum hinum skeytunum. Pósturinn til Sigríðar var þó af öðrum meiði og mun styttri. Þar stóð:

„Ég vil fyrir hönd Vantrúar þakka þér fyrir. Þér hefur tekist að valda ríkiskirkjunni meira tjóni en okkur öllum. Það er frábært að sjá hve staðföst þú ert í að losa okkur við þessa óværu sem kirkjan er.

Ef allt gengur svona vel þá þarf ekki að pirra sig neitt um jólin. Frábært ef þú gætir losað okkur líka við messur í útvarpi.

Bestu þakkir og „keep up the good work.“

Fyrir hönd Vantrúar,

Eddi.

Ps. Mig langar svo að þakka þér persónulega. Yngri bróðir minn sem því miður trúir á Guð og allt þetta dót býr í hverfinu hjá þér.

Hann er hættur að fara í messu, þökk sér þér. Kallar þig æðsta prest haturs og hefndar og vill ekki taka við sakramenti úr slíkri hendi.“

Ljóst var að bréfið kom ekki frá Vantrú heldur einhverjum sem þekkti vel til innviða Þjóðkirkjunnar. Þann 21. júní sóru Vantrúarmenn sig af því að eiga hlut að máli.

 

Kristín Þórunn
Fékk svæsinn tölvupóst og kærði til lögreglu.

Tengir við biskupsmálið

Ekki er vitað um meiri tölvupóst til presta frá Eðvaldi Eðvaldssyni og af þessum var pósturinn til séra Kristínar alvarlegastur og rætnastur. Hún brást einnig við honum. Í samtali við DV segir Kristín:

„Strax og ég fékk bréfið sendi ég það á póstlistann til að aðrir prestar sæju það. Ég vildi hafa allt opið í sambandi við þetta. Þá fékk ég sterk viðbrögð frá mínum kollegum og mörgum var misboðið við að lesa bréfið.“

Hvernig fékk þetta á þig?

„Þetta var svolítið áfall. Ég dró þá ályktun að þetta væri einhver sem hefði aðgang að lokuðum póstlista sem starfandi prestar í Þjóðkirkjunni á þeim tíma hefðu sín á milli. Bréfið var sent mjög stuttu eftir að ég hafði sett efni inn á þann póstlista og það var greinilegt að þessi aðili var inni í þeim málum sem var verið að ræða þar. Það fékk á mig að vita að þetta væri kollegi eða einhver sem tengdist kollega. Þetta var mjög rætið bréf og virtist skrifað af einhverjum sem þekkti til mín og samstarfsfólks míns.“

Hvaða tilgangi heldur þú að þetta hafi þjónað?

„Kannski að slá á einhverja putta í tengslum við biskupsmálið. Ég hafði tekið afstöðu og staðið með þeim konum sem sögðu frá áreiti af hálfu Ólafs Skúlasonar.“

Kristín, líkt og Sigríður og Örn Bárður, tilheyrði á þessum tíma „órólegu deildinni“ innan prestastéttarinnar og hafði gagnrýnt Karl Sigurbjörnsson fyrir viðbrögð hans.

„Ég tengdi við þetta mál og velti því fyrir mér hvort sendandinn væri einhver sem taldi að sér vegið. Mögulega einhver tengdur fyrrverandi biskupi.“

Á sínum tíma greindi DV frá því að Kristín hefði leitað til lögreglunnar vegna póstsins, sem hún hafði upplifað sem mikið ofbeldi. Kristín segir nú að ekkert hafi hins vegar komið út úr því.

„Ég hafði samband við lögregluna en eftir nokkur samtöl var mér sagt að bréfið væri ekki nógu alvarlegt til að þeir gætu krafist upplýsinga frá Google, að hótanirnar gengju ekki nógu langt. Þetta fannst mér súrt af því að mér fannst langt gengið.“

 

Magnús E. Kristjánsson
Mætti Erni Bárði á Suðurlandsbraut.

Örn og Magnús hittast

„Eðvaldsmálið“ var mikið rætt á meðal presta og var það tekið fyrir hjá prófasti og vinnuhópi. Örn Bárður skrifaði bréf þar sem honum hafði brugðið við að sjá nafn Magnúsar Eðvalds Kristjánssonar á lista yfir kirkjuþingsmenn. Magnús er núverandi forseti kirkjuþings og þáverandi varaforseti. Faðir hans er Kristján Eðvald Halldórsson. „Þarna var þá kominn Eðvald Eðvaldsson sjálfur að því er ætla mætti,“ skrifaði Örn Bárður.

Magnús hafði samband við Örn Bárð og sagðist þurfa að tala við hann „og horfa í augu“ hans. Hittust þeir fyrir utan Suðurlandsbraut 20 og ræddu málin á fundi, og samkvæmt heimildum DV var mönnum heitt í hamsi. Hafnaði Magnús þá alfarið að hafa skrifað tölvupóstinn og sagðist Örn Bárður verða að trúa því.

Það segir einnig ónefndur prófastur sem var einn af þeim sem rannsökuðu málið í samtali við DV og spurði Magnús út í tölvupóstinn:

„Við héldum fund með þeim sem okkur þótti líklegir. Við fengum engan til að játa það að hafa sent þessi bréf. Niðurstaðan var einfaldlega sú að einhver hefði notað þetta netfang án þess að eigandi þess hefði verið á nokkurn hátt viðriðinn þetta mál. Það var í sjálfu sér ekkert leyndarmál að Magnús ætti netfangið, það benti allt til þess. En okkur fannst það ólíklegt að hann hefði komið nálægt þessu sjálfur. Maður veit ekki hvað gerist og hvernig vinskapur er á milli manna. Það kom aldrei nein niðurstaða í þetta mál.“

Í samtali við DV segist Magnús kannast við málið af því að það hafi hlotið umræðu á sínum tíma.

Kannast þú við fund sem var haldinn út af þessu máli, þar sem þú varst spurður út í það mál?

„Nei, ég man ekki eftir því. Ég var spurður um þetta vegna þess að ég er Eðvaldsson, en ég man ekki eftir neinum fundi.“

Magnús viðurkennir að prestur hefði borið þetta upp á hann.

„Hann var eini maðurinn sem hafði raunverulega, sem ég vissi, ætlað mér að standa í bréfaskriftum.“

Átt þú þetta netfang?

„Nei, ég hef aldrei viðurkennt það því að ég hef aldrei átt þetta netfang. Það var aldrei gengið frá því, ég hefði aldrei verið kosinn forseti kirkjuþings árið 2012 ef að ég hefði verið í þeirri stöðu.“

 

Skúli S. Ólafsson
Neitaði einnig að hafa skrifað bréfin.

Biskup skipar fólki að hætta sakbendingum

Öðru nafni sem velt var upp var nafn séra Skúla S. Ólafssonar í Keflavíkurkirkju, sonar Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi biskups, og eiginmanns Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur lögreglustjóra. Hafði hann haldið uppi vörnum opinberlega fyrir föður sinn og meðal annars komið fram í kastljósi og sagt minningar systur sinnar um kynferðisofbeldi vera falskar. Var hann beðinn að taka ekki sæti á kirkjuþingi fyrir Kjalarnesprófastsdæmi þar sem mál Ólafs var rætt. Kristín tók sæti hans á þinginu í staðinn.

Svaraði hann sendingu Kristínar á prestalistanum með þeim orðum að sendingin frá Eðvaldi væri döpur en nafnleysið í samskiptunum væri „blessunarlega alger undantekning.“ Væri þetta því einstakt tilvik og frekar ætti að einbeita sér að einhverju sem efldi kirkjuna.

Netfangið edvaldedvaldsson@gmail.com fannst á Facebook-auglýsingu hjá samtökum sem kallast Virkjun mannauðs á Reykjanesi, sem Skúli hefur starfað með og haldið fyrirlestur fyrir.

Skúli staðfestir í samtali við DV að hann hafi verið spurður hvort hann hefði haft aðkomu að tölvuskeytunum undir nafni Eðvalds Eðvaldssonar en hafnar því alveg.

„Þetta var mjög óhuggulegt því að í einhverjum bréfunum voru hótanir,“ segir Skúli. „Ég sór af mér alla sök í þessu máli enda kom ég ekkert nálægt þessu.“

Þann 21. júní sendi svo Karl Sigurbjörnsson skilaboð til presta í gegnum prestalistann þar sem hann bað um að sakbendingum yrði hætt. Þar segir:

„Í Guðs bænum hættið þessum sakbendingum hér á listanum. Gætið þess að það er verið að bendla fólk, sem ekki getur svarað fyrir sig, við þetta sorglega mál. Þetta er komið út yfir öll velsæmismörk.“

Var Örn Bárður mjög ósáttur við að málið yrði þaggað niður og sagði: „Nú biður biskup okkur um að hætta þessum leik. Slíkt er varla hægt. Við verðum að svæla út þá refi tvo sem hér eru sekir.“ Taldi Örn Bárður að gerendurnir væru tveir, annar sem skrifaði og hinn sem læki upplýsingum af prestalistanum.

„Og það er skýlaus skylda biskupsembættisins að upplýsa málið eða gangast fyrir því að það verði upplýst. Á meðan það gerist ekki liggur öll prestastéttin undir grun.“

Málið var einnig tekið fyrir á fundi Prestafélagsins sem haldinn var á Akureyri en samkvæmt heimildum DV komu skipanir þar um að málið yrði ekki rætt frekar.

Agnes M. Sigurðardóttir Var kjörin biskup vorið 2012.

Biskup kjörinn

Eðvaldsmálið hefur verið sett í samhengi við biskupskjör enda eru biskupsskipti beinlínis rædd í tölvupóstinum frá hinum nafnlausa aðila. Tveir af þeim þremur prestum sem fengu sendingarnar, voru orðaðir við biskupsembættið þegar ljóst var að Karl væri að láta af störfum.

Um veturinn var boðað til biskupskjörs og fór það fram vorið 2012. Sigríður og Örn Bárður buðu sig fram ásamt sex öðrum. Hvorugt þeirra komst í aðra umferð en þar sigraði séra Agnes Sigurðardóttir séra Sigurð Árna Þórðarson þann 25. apríl.

Enginn af prestunum þremur er búsettur á Íslandi í dag. Sigríður og Örn Bárður fluttust til Noregs og Skúli tók við brauðinu í Neskirkju af honum. Kristín er búsett í Genf í Sviss.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar