fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Hjaltalín – Lítill tími til æfinga

Guðni Einarsson
Laugardaginn 12. janúar 2019 20:00

Hjaltalín Nýtt lag á nýju ári.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hljómsveitin Hjaltalín er nú að koma saman eftir nokkurt hlé og hefur þegar tekið upp eitt lag. Plata gæti verið handan við hornið og hljómsveitin hefur þegar bókað Eldborgarsal Hörpu í haust. DV ræddi við meðlimi Hjaltalín um samstarfið, ferilinn og heiftarlegt rifrildi um fisk.

Fjöldinn gerir hlutina flókna

Meðlimir Hjaltalín kynntust flestir í Menntaskólanum í Hamrahlíð og stofnuðu hljómsveitina í kringum lagasmíðakeppni þar haustið 2004. Fyrsta lagið sem þau gáfu út var jólalagið „Mamma kveikir kertaljós.“ Eftir þetta sömdu þau meira og komu fram á tónleikum. Lagið „Margt að ugga“ kom þeim síðan á kortið.

Fjöldinn í bandinu var mjög rokkandi og um tíma voru alls níu í því. Auk hefðbundinna hljóðfæra voru fagott- og klarínettleikarar í bandinu. Síðan þá hefur fækkað og nú eru sex meðlimir; Högni söngvari og gítarleikari, Sigríður söngvari, Axel trymbill, Viktor fiðluleikari, Hjörtur hljómborðsleikari og Guðmundur bassaleikari.

Hvernig hefur samstarfið gengið í gegnum tíðina?

„Samstarfið hefur almennt séð verið gott, oft mjög gott,“ segir Hjörtur. „Þótt stundum sé erfitt að taka endanlega ákvörðun um sósuna þegar margir kokkar eru í eldhúsinu.“

Meðlimir Hjaltalín eru sammála um að fyrstu árin hafi verið sérstaklega skemmtileg. Þegar hljómsveitin var að skapa sér nafn.

„Að spila á Nasa með tólf manna bandi í einhverri vitleysu og allt í steik var mjög gaman,“ segir Högni. „Svo ferðuðumst við mjög mikið og spiluðum gríðarlega mikið erlendis árin 2009 til 2011. Okkur hefur alltaf þótt gaman að halda stóra tónleika, með miklu veseni og mörgum spilurum. Það var til að mynda svakalega gaman að halda tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói árið 2010. Við tókum þá tónleika upp á hljóð og mynd og gáfum út undir nafninu Alpanon. Eins þótti okkur ótrúlega gaman síðast þegar við héldum tónleika í Eldborg, árið 2014.“

 

Sigríður og Högni
Hljómsveitin tekið miklum breytingum í gegnum tíðina.

Hnakkrifust um fisk

Hjaltalín hefur verið í pásu í þó nokkurn tíma en er nú að snúa aftur og vinna að plötu. Hjörtur segir að það hafi hins vegar verið meðvituð ákvörðun að leggjast í híði. Hjörtur segir:

„Við höfum alltaf með reglulegu millibili haldið áfram vinnu við plötuna. En aðstæður voru einhvern veginn þannig að það meikaði sens að allir myndu vera svolítið í sínu horni, að gera sitt. Á síðustu árum hafa þrír meðlimir eignast samanlagt fimm börn. Síðan hafa Högni og Sigga sinnt sínum ferlum, Guðmundur verið að pródúsera og taka upp plötur, Axel hefur verið að vinna sem flugmaður, Viktor verið að semja kvikmyndatónlist í Berlín og ég verið að spila og kenna á fullu.“

Högni er leiðtogi sveitarinnar og er hann gjarnan kallaður forsprakkinn af hinum meðlimunum. Í seinni tíð hafa aðrir hins vegar lagt meira í púkkið hvað varðar hugmyndavinnu og til að mynda semur Sigríður textana á nýju plötunni. Hjörtur sér um fjármálin og fleiri praktíska hluti í samstarfi við umboðsmanninn Steinþór Helga. Steinþór er einnig með puttana í sköpunarferlinu sjálfu og segir sína meiningu umbúðalaust. Viktor sér um útsetningar og Guðmundur um upptökur. Þá hefur Axel yfirumsjón með öllu trommutengdu.

Eins og í öllum langtímasamböndum þá geta komið upp deilur. Sigríður segir:

„Við áttum einu sinni heiftarlegt rifrildi á hóteli í Manchester um spurninguna: Hvor er betri, ýsa eða þorskur? Högni var á því að þorskur væri betri, og við hin vorum í grunninn sammála því, en tókum þann pól í hæðina að ýsan væri æt samt sem áður. Þessi umræða tók um fimm klukkutíma og hefði mjög auðveldlega getað endað með limlestingu.“

Þurfa að plana með löngum fyrirvara

Hefur hljómsveitin tekið miklum breytingum síðan þið byrjuðuð?

„Já, það er margt öðruvísi en í byrjun,“ segir Sigríður. „Þá var svo margt sem gerðist á hljómsveitaræfingum til dæmis. Við æfum minna núna. Þá höfðum við heldur ekki aðgang að stúdíói alla daga eins og í dag. Hlutirnir þurftu að vera nokkuð klárir áður en við fórum í upptökur. Í dag eru Gummi og Hjörtur með stúdíó þar sem við getum gert nánast allt sem við þurfum, þegar okkur langar til. Svo vinnuferlið hefur breyst mjög mikið.“

Þá segja meðlimir Hjaltalín að það hafi óumdeilanlega áhrif á starfið að meðlimirnir eru komnir í aðrar hljómsveitir og sólóferla. Til að mynda býr Viktor ekki á Íslandi og Högni spilar mikið erlendis.

„Þetta hefur þau áhrif að við þurfum að vera mjög skipulögð og tökum því ekki sem gefnu að geta bara hent í æfingu si svona eins og í gamla daga. Hlutirnir gerast ekki af sjálfum sér og þá þarf að plana með löngum fyrirvara,“ segir Sigríður.

Þorskur eða ýsa?
Högni og félagar eru ósammála um fisk.

Texti að handan

Hvað kemur til að þið gefið út nýtt efni núna?

„Ætli við höfum ekki verið komin með leiða á að bíða og gefa ekkert út. Já, og svara spurningunni: Hvenær kemur svo nýtt Hjaltalín-lag út? Svo var plottið að bóka tónleika í Eldborg í september. Þá er komin pressa á okkur að klára plötuna. Við erum þannig hljómsveit, að við vinnum best undir pressu. Síðan söknuðum við líka hvert annars,“ segir Hjörtur.

Það stór elektrónískur hljóðheimur sem við heyrum í nýja laginu. Eru þið að færa ykkur meira út í elektróníkina?

„Já, algjörlega. Allavega meira en við höfum verið að gera. Það var ekki beint ætlunin að færa okkur meira út í elektróník bara til að gera það,“ segir Hjörtur.

Um hvað fjallar lagið?

Textinn kom „að handan“ í stúdíóinu í miðju lagi. Það var ekki nein sérstök pæling á bak við hann og svo tók Atli Bollason þátt í textavinnunni eftir það. Lagið fjallar um þessa barónessu, sem er mjög dularfull. Við vitum í rauninni ekki mikið um hana, nema það að hún talar til okkar í þessu lagi,“ segir Sigríður.

Eigum við von á nýrri Hjaltalín-plötu á þessu ári?

„Við skulum orða það þannig að það er ekki fjarlægur möguleiki,“ segir hún.

Hjaltalín heldur stórtónleika í Eldborgarsal Hörpu þann 7. september, í fyrsta sinn síðan árið 2014. Högni segir:

„Þeir hafa verið auglýstir sem stærstu tónleikar hljómsveitarinnar til þessa og við ætlum ekki að valda vonbrigðum hvað það varðar. Þetta verður að vera extra þétt og líka sjónarspil. Fólk má líka búast við að sjá ný lög sem koma út á árinu í samblandi við eitthvað gamalt og gott.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“