fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Vintage Caravan slær í gegn í Þýskalandi

Guðni Einarsson
Föstudaginn 7. desember 2018 16:00

The Vintage Caravan Spila fyrir Íslendinga á Hard Rock Cafe.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rokkhljómsveitin Vintage Caravan var stofnuð af fjórum strákum frá Álftanesi fyrir tólf árum. Síðan þá hafa þeir gefið út fjórar plötur, flutt til útlanda og komist á samning hjá einu stærsta útgáfufyrirtæki þungarokks heims. Meðlimirnir Óskar, Alexander og Stefán ræddu við DV.

 

Eltu drauminn út með Norrænu

Hljómsveitin var stofnuð árið 2006 þegar meðlimirnir voru aðeins tíu eða ellefu ára gamlir. Þetta voru þeir Óskar Logi Ágústsson, Halldór Gunnar Pálsson og Guðjón Reynisson. Þannig var skipun bandsins fyrstu fjögur árin. Árið 2009 lentu þeir í þriðja sæti á Músíktilraunum og tóku fyrstu plötuna upp í kjölfarið í verðlaunahljóðverstímunum. Óskar segir:

„Eftir Músíktilraunir fórum við að spila á fullu. Þetta var algjört ævintýri. Ég man að ég fór niður í bæ og tékkaði á öllum stöðum sem hægt var að spila á og við bókuðum mjög margar helgar. Frá 2009 til 2013 vorum við eiginlega að spila flestar helgar hérna heima.“

Mannabreytingar urðu árið 2010. Halldór Gunnar hætti og Páll Sólmundur kom inn. Það ár spilaði Vintage Caravan á tónlistarhátíðinni Gærunni sem Óskar segir að hafi verið stórt skref fyrir þá. Þeir spiluðu einnig í fyrsta skipti á Iceland Airwaves. Páll hætti árið 2012 og þá kom Alexander Örn Númason inn. Það ár gáfu þeir út sína aðra plötu, Voyage.

„Með innkomu Alexanders fór bandið á miklu hærra flug,“ segir Óskar. „Árið eftir fengum við útgáfusamning við Nuclear Blast, sem er risastórt þýskt útgáfufyrirtæki.“

Alexander segir:

„Í framhaldi af því endurútgáfum við Voyage hjá Nuclear Blast og fengum bókunarþjónustu til liðs við okkur. Svo fórum við bara beint að túra. Við ákváðum að flytja til Danmerkur svo það værir auðveldara fyrir okkur að taka tónleika úti, af því að við vorum að fá fullt af svona tilboðum. Allir fyrstu túrar úti eru þannig að fólk er mjög mikið að borga með þeim, til dæmis flugið og fleira. Við svindluðum pínu og fluttum út og vorum þar í tvö ár.“

Óskar bætir við:

„Við hættum í vinnunni og skildum allt eftir til að elta drauminn. Við fengum hugmyndina að þessu á miðvikudegi. Vorum búnir að finna stað og búnir að ákveða að fara á föstudegi. Mánuði seinna vorum við farnir út með Norrænu.“

Flókið að eiga kærustur í tónleikaferð

Árið 2015 tóku þeir upp plötuna Arrival í félagsheimili í Borgarfirðinum. Skömmu síðar hætti Guðjón sem trymbill og Stefán Ari Stefánsson kom inn í stað hans.

Starfið þið alfarið við tónlistina?

Stefán: „Að mestu leyti er tónlistin forgangsatriði. En svo hefur maður verið að taka auka störf, sem barþjónn hér og þar og eitthvað svoleiðis.“

Óskar kennir á gítar og Alexander starfar sem sviðsmaður.

Þegar þið eruð á túr og eruð að spila mikið, náið þið þá að framfleyta ykkur alfarið á tónlistinni?

Alexander: „Við getum það og það er líka nauðsyn. Það er svo mikið að gera hjá okkur og því erfitt að fá vinnu þegar maður er í burtu sex mánuði á ári.“

Óskar: „Caravan er það stór hluti af okkar lífi að það tekur mestallan tímann hjá okkur. Sem er ekki slæmur hlutur, þetta er skemmtilegasta vinna í heimi.“

Fáið þið aldrei leiða á þessu?

Stefán: „Kannski mest þreyttir á því að búa í ferðatöskunni. Mann langar að fara heim í sturtu og eitthvað og svo fara út aftur.“

Óskar tekur undir þetta og Alexander segir:

„Svo eru bara allir aðrir í vinnunni eða í skóla og maður situr heima hugsar: Hvað á ég að gera núna?“

Hvernig er einkalífið þegar þið eruð að spila svona mikið, eigið þið kærustur?

Alexander: „Ég bjó úti með kærustunni minni, hún er frá Austurríki. Hún hefur verið mjög dugleg að mæta á tónleika. Yfirleitt er ekki mikið pláss fyrir einhverja auka manneskju í rútunni, sem er ekki að starfa við neitt hjá bandinu. Við reynum að forðast það eins mikið og við getum. Það er líka erfitt að fókusera og þetta er hörkuvinna, oft fimmtán tíma vinnudagar. Þetta er svona „hálft og hálft long distance“ en það er alltaf rosalega gott að koma heim til konunnar.“

Óskar: „Ég er með svona díl, ég reyni að hringja svona einu sinni á dag. Tékka hvort allt sé í góðu og reyna að vera ekki of fjarlægur. Stundum er það erfitt, til dæmis á seinasta tónleikaferðalagi, en maður lætur þetta ganga.“

Framleiðandinn fékk flogakast

Eftir Arrival tóku við stanslaus tónleikaferðalög í þrjú ár og Óskar segir að það hafi tekið verulega á. Þeir hafi verið orðnir þreyttir og kulnaðir. Þá hafi þeir tekið sér hálft ár í pásu. Nýjasta platan kom síðan út á þessu ári og heitir Gateways. Alexander segir að hún hafi komið ári á eftir áætlun vegna pásunnar.

„Ýmsir hlutir gerðu það að verkum að það tókst ekki. Fyrst seinkaði ferlinu um nokkra mánuði og svo loks þegar við vorum búnir að taka upp plötuna þá fékk framleiðandinn okkar, sem ætlaði að fara blanda plötuna, flogakast undir stýri. Hann þurfti að fara á spítala og það seinkaði þessu um aðra sex mánuði. Platan hefði getað verið tilbúin miklu fyrr.“

Stefán segir að stíft tónleikahald um Evrópu hafi tekið við af útgáfunni. „Við vorum að koma frá Rússlandi í fyrradag, við tókum tvenna tónleika þar, í Péturborg og Moskvu, sem var bara algjör snilld.“

Hvar myndu þið segja að ykkar helsti aðdáendahópur sé?

Stefán: „Aðallega í Þýskalandi og löndunum þar um kring. Það eru margir rokk- og metalaðdáendur í Þýskalandi. Útgáfufyrirtækið okkar er þýskt og alltaf langbest fyrir okkur að spila þar.“

 

Grassering í næstu bylgju

Vintage Caravan treður upp á Hard Rock Cafe þann 7. desember næstkomandi. Stefán segir að þeir muni spila kokteil af öllum plötunum. Síðast þegar hljómsveitin spilaði hér heima tóku þeir heila plötu í gegn. Nú fær fólk að heyra sama prógramm og þeir spila erlendis.

Finnst ykkur vera mikill munur á rokksenunni hérna heima og úti?

Alexander: „Það er alltaf þessi pínu íslenski fílingur sem loðir við allt íslenskt tónlistarlíf. Þetta er miklu nánara, fólk deilir til dæmis meira meðlimum. Það er ekkert óalgengt að einn sé í fjórum eða fleiri böndum, sem maður sér minna af úti. Í rokksenunni er mikið af upprennandi böndum. Mér finnst eins og seinustu ár hafi ekkert svakalega mikið verið að gerast, svona á hærra plani, fyrir utan þessi bönd sem hafa verið í gangi lengi eins og Sólstafi, Dimmu og Skálmöld. Það virðist vera einhver grassering sem er að koma í næstu bylgju.“

Hvað er svo næst á sjóndeildarhringnum hjá ykkur?

Óskar: „Það eru að hrúgast inn fjölmargar hátíðir næsta sumar. Við verðum á Wacken, einni stærstu metalrokkhátíð í heiminum. Svo eru fullt af flottum hátíðum sem við förum að tilkynna bráðum. Eftir sumarið er planið að fara á stóran túr þar sem við hitum upp fyrir eitthvert stórt band eða tökum sjálfir svipaðan túr og við vorum að gera núna.“

Miðasala á tónleika 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“