fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Ég er fagnaðarsöngur – Svikaskáld hefja ljóðakaffi

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 12. september 2018 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

 Í kvöld kl. 20 hefst fyrsta ljóðakaffi Borgarbókasafnins í Menningarhúsinu í Gerðubergi. Svikaskáld lesa upp úr verkum sínum og spjalla um eigin skrif. Hvernig fara sex skáld að því að skrifa saman bók?

Svikaskáld er sex kvenna ljóðakollektív, skipað þeim Fríðu Ísberg, Melkorku Ólafsdóttur, Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur, Sunnu Dís Másdóttur, Þóru Hjörleifsdóttur og Þórdísi Helgadóttur. Svikaskáld hafa sent frá sér bækurnar Ég er ekki að rétta upp hönd (2017) ogÉg er fagnaðarsöngur (2018).

Svikaskáldin eru ung og upprennandi skáld og var því upplagt að bjóða þeim að ríða á vaðið í fyrsta Ljóðakaffi Borgarbókasafnsins. Þær kynntust í ritlist í Háskólanum og áttu það sameiginlegt að eigin sögn að vera haldnar fullkomnunaráráttu hvað varðar texta. En skyldi það hafa breyst? Hvað varð til þess að þær tóku skrefið og gáfu út ljóðabók?

Eftir að við höfum heyrt þær lesa upp og fjalla um ljóðin sín er gestum frjálst að spyrja skáldin spjörunum úr.

Ljóðakaffi er vettfangur fyrir alla að lesa upp ljóðin sín. Eftir hlé eru ljóðaáhugamenn og skáld meðal gesta hvattir til að lesa upp ljóð sem þeir hafa geymt í skúffunni eða í tölvunni. Ekki láta fullkomnunaráráttuna stoppa þig. Taktu skrefið og komdu upp úr skúffunni.

Ljóðakaffi er nýr viðburður sem verður í bland við Sagnakaffi  annan miðvikudag mánaðarins í Gerðubergi.  Jafnframt er boðið upp á handverkskaffi, heimspekikaffi, leikhúskaffi og bókakaffi á miðvikudagskvöldum í menningarhúsum Borgarbókasafnsins.

Ljóðakaffi fer fram í kaffihúsinu í Gerðubergi og geta gestir fengið sér kaffi og með því á meðan á dagskrá stendur.

Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Ókeypis aðgangur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Hvalur sprakk í tætlur
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bríet kom vinkonu sinni rækilega á óvart með nýju hári – „Lít ég ekki út eins og ódýr hóra?“

Bríet kom vinkonu sinni rækilega á óvart með nýju hári – „Lít ég ekki út eins og ódýr hóra?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart
Fókus
Fyrir 5 dögum

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig