fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Fjöllistahátíð haldin í fyrsta sinn á Íslandi – Komdu í opnunarpartý á morgun

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 2. júlí 2018 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reykjavík Fringe Festival er haldin í fyrsta sinn á Íslandi núna í vikunni, dagana 4.-8. júlí. Fjöllistahátíðin býður meðal annars upp á leiklist, dans, uppistand, spuna, kabarett, sögustundir, myndlistarsýningar, kvikmyndir, fyrirlestra, námskeið, drag, innsetningar, tónlist, ljóðalestra og fleira.

Fyrirmynd hátíðarinnar er Edinborgar-Fringe hátíðin sem haldin var í fyrsta skipti árið 1947. „Upprunalega var þetta þannig að það er listahátíð í Edinborg en þar voru einhverjir listamenn sem voru ekki á henni og ákváðu að setja upp sína eigin listahátíð í galleríum og kaffihúsum. Með hverju árinu sem leið bættist alltaf í hópinn og nú taka mörg þúsund manns þátt á hátíðinni og um 50.000 sýningar fara fram á hverju ári,“ segir Nanna Gunnars, sem er einn aðalskipuleggjenda hátíðarinnar.

Hátíðin virkar ekki eins og venjuleg listahátíð þar sem einhver stjórnar því hver sýnir og sótt er um heldur geti hver sem er sett upp sýningu. Meira en 50 listamenn/hópar taka þátt og halda yfir 130 sýningar á 5 dögum á 11 staðsetningum víðs vegar um miðborg Reykjavíkur.

Opnunarkvöld Reykjavík Fringe var haldið á Hlemmi Square í gærkvöldi og var fullt út úr dyrum. Myndir frá kvöldinu eru teknar af Sveinlaugu Sigurðardóttur.

Opnunarkvöld, Nanna Gunnars heldur ræðu.
Opnunarkvöld, Sóla Eva.
Opnunarkvöld, María Callista.
Opnunarkvöld, Ungfrú Hringaná.
Opnunarkvöld, skipuleggjendur Reykjavík Fringe Festival.
Opnunarkvöld, Improv hosts.

Sérstakt forsýningarkvöld verður haldið annað kvöld, þriðjudaginn 3. júlí kl 20:30 í Tjarnarbíó þar sem flestallir listamenn hátíðinnar munu kynna atriðin sem þau eru með á 2 mínútum. Aðgangur er ókeypis á þessa þriðjudags veislu.

Verkin sem verða á Reykjavík Fringe koma hvaðanæva að og eru meðal annars frá Íslandi, Bandaríkjunum, Svíþjóð, Þýskalandi, Bretlandi, Brasilíu, Kanada, Ástralíu og Ísrael. Flestar sýningar fara fram á ensku, en einnig eru sýningar á íslensku ásamt sýningum sem fara ekki fram á töluðu máli, svo sem myndlistarsýningar, innsetningar og dansverk.

Dömur og herra, mynd: Lilja Draumland.

Sem dæmi um verk má nefna spunasýningu Improv Iceland, eins dags tónlistarveislu sem fer fram á Dillon, fjölmargar uppistandssýningar, sérstaka dragsýningu Drag-súgs,ljóðaslamm keppni og dansverkið All the Sisters in MeKassinn er leikhúsverk í sýndarveruleika, Miss Mokki býður upp á námskeið fyrir byrjendur í burlesque, á Smut Slam segja áhorfendur sannar kynlífssögur á sviði, Dömur & herra verða með kabarett sýningu en umtalaðasta sýning hátíðarinnar er American Single þar sem leikkona fer á stefnumót við áhorfanda úr salnum.

Frank Wurzinger The Confetti Maker.
Jono Duffy-I Wouldn’t Date Me Either.

Elísabet Jökulsdóttir stýrir leiklestri, kattagöngutúrar eru í boði, hægt er að hlýða á hljóðverkið Vættir sem krefst þess að þú mætir með þinn eigin síma eða skella sér í heimahús þar sem verðlaunasýningin Phone Whore fer fram fyrir takmarkaðan áhorfendafjölda. Í lok hátíðar er svo hægt að ferðast aftur í tímann með að stíga inn í Rauða skáldahúsið.

Dagskrá Reykjavík Fringe Festival má sjá í heild sinni á heimasíðu hátíðarinnar og á Facebook.

Miðasala fer fram á Tix.is en passi fyrir alla hátíðina er á 9.900 kr. Einnig er hægt að kaupa miða á einstaka sýningar bæði á Tix og við hurð.

Rachel Schollaert. Incorrect.
Films on the Fringe.

Absolute Magic.
American Single.
Smutslam.
The Ordinary Princess.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United
Eyjan
Fyrir 3 klukkutímum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum
Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf
Eyjan
Fyrir 5 klukkutímum

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Verk og vit sett með pomp og prakt

Verk og vit sett með pomp og prakt
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“