fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

Þau slógu í gegn …

Bryndís Schram fjallar um sirkussöngleikinn Slá í gegn í Þjóðleikhúsinu

Kristján Guðjónsson
Föstudaginn 2. mars 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Höfundur: Bryndís Schram.

Það er einmitt á svona kvöldum í leikhúsinu, sem ég hverf í huganum langt aftur í tímann og fyllist söknuði – nostalgíu – eftir einhverju, sem var, endur fyrir löngu, en aldrei kemur til baka. Það var á svona kvöldum, sem maður skynjaði svo sterkt aðdráttarafl leikhússins – hvað það er, sem gerir leikhúsið að töfraveröld – ærir mann og tryllir.

Á svona kvöldum fallast allir í faðma í lok sýningar, gráta af gleði, örþreyttir en hamingjusamir. Fagnaðarlátum áhorfenda handan tjaldsins ætlar aldrei að linna, það er stappað í gólfið og hrópað – „encore, encore!“ Fögnuðurinn hríslast um sviðið, og allir verða vinir. Allir – líka smiðurinn, sendillinn, skúran, sminkan og tenórinn – jafnvel súperstjarnan. Því að samstaðan skiptir öllu máli, þegar upp er staðið. Einn hlekkur bregst – og allt hrynur. Þetta er hópvinna, þar sem allir leggjast á eitt.

Sagan að baki öllum þessum hávaða og látum, skrauti og skrumi er oftast nauðaómerkileg og varla þess virði að leggja á minnið: Ást í meinum, ást í bala, svik og prettir, bla, bla, bla … En það er gjörningurinn sjálfur, tónlistin, söngurinn, dansinn, flikkflakkið, flippflappið og töfrabrögðin, sem heilla áhorfendur upp úr skónum og verða ógleymanleg.

Farandleikhús í félagsheimilinu

Slá í gegn er einmitt dæmi um þetta. Góa er falið það hlutverk að spinna þráð úr sögu Stuðmanna, tengja saman verk þeirra, svo að úr verði heildarmynd, með upphaf og endi. – (Þetta hefði eflaust getað orðið ástarsaga með dramatískum tilþrifum, en þá hefði kannski ekki orðið svona gaman í leikhúsinu) – Nei, Gói velur þá leið, sem reyndar lá í augum uppi, að búa til farandleikhús, sem var mjög í tísku á þeim árum, þegar Stuðmenn voru að fóta sig í tónlistarflórunni. Þá var ferðast um landið að sumarlagi, boðið upp í dans í félagsheimilum, og duflað og daðrað fram undir morgun. Stuðmenn urðu fljótlega eftirlæti allra – þeir slógu í gegn, mjög ólíkir, en samhentir þó. Hver snillingurinn á fætur öðrum.

Ragga varð svo rósin í hnappagatinu. Hver smellurinn af öðrum smitaði frá sér út í þjóðfélagið. Lög Stuðmanna voru komin til að vera. Þeir voru þarna, Stuðmennirnir, næstum allir um kvöldið í leikhúsinu – nema Tómas, blessuð sé minning hans. Ég sá ekki Valla. Löngu orðnir goðsagnir í lifanda lífi, en – þrátt fyrir frægðarljómann – hógværir og lítillátir. Þakklátir? Já, kannski. Sjálft Þjóðleikhúsið lagt undir, virðulegasta stofnun þjóðfélagsins. Aðdáendur gátu ekki dulið fögnuð sinn, allir brosandi út að eyrum, trallandi „slá í gegn“.

Mynd: Hörður Sveinsson

Heimurinn í heimsókn

Í upphafi leit út fyrir, að sagan hans Góa ætlaði að verða svolítið púkó – naív eða gamaldags. Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, mættur í hlutverki hins heimaríka allsherjarþorpsreddara, sem er að færa upp Gullna hliðið í félagsheimilinu, í lopapeysu með kústinn á lofti. Einhvern veginn gat maður ekki alveg sæst við borgarstjórann fyrrverandi í þessu hlutverki. Var þetta djók?

En svo breytist allt, þegar sirkusinn kemur í bæinn, heimurinn kemur í heimsókn. Þorpsbúar fá tækifæri til að sýna, hvers þeir eru megnugir. Og það er ekki upp á þá logið: Edda Björgvins, Sigurður Þór, Siggi Sigurjóns, Esther Talía, Hallgrímur, Oddur, Birgitta, og Þórey syngja öll, dansa og hlæja af slíkri hjartans list, að maður sýpur hveljur og tárast. Og ekki versnar það, þegar Helga og Binni (Ólafía og Örn) – og auðvitað dóttir þeirra, hún Harpa Sjöfn (Snæfríður) – skerast í leikinn, og sirkusinn tekur á sig mynd.

Þau Helga og Binni, sem eru vön í bransanum, vita sem er, að sjóið er ekki fullkomnað, nema þau geti boðið upp á stórstjörnu í lokin. Og þar kemur hr. Frímann til sögunnar (Hilmir Örn), ásamt aðstoðarmanni sínum, Herra Reykjavík (Bjarni Snæbjörnsson) – og trylla liðið. Áhorfendur geta varla setið kyrrir í sætum sínum fyrir gleðihrolli.

Ótrúleg færni og hópvinna

Það sem eftir situr, þegar upp er staðið, er þessi ótrúlega færni – og þá er ég ekki að tala um stórstjörnur eins og Ólafíu Hrönn, Örn Árna, Eddu Björgvins, Sigga Sigurjóns eða Hilmi Snæ – við vitum allt um þau. Ég er að hugsa um þessa ungu krakka, sem sýndu fágæta agaða leikni, hvort sem var í dansinum eða fimleikunum. Þeir voru eiginlega hið undraverðasta í þessari sýningu. Danshöfundurinn, Chantelle Carey, er greinilega fagmanneskja, stelur ekki sjóinu, en gefur því fyllingu og fjör. Gleður augað.

Við erum stödd í „vaudeville“, leikhúsi gleðinnar. Það er sungið og dansað á sviðinu. Gleðigjafar og grínarar gantast. En þar koma líka við sögu hönnuðir, smiðir, danshöfundar, ljósameistarar, búningahönnuðir og tónlistarmenn. Án þeirra væri ekkert leikhús – ekkert „vaudeville“ – enginn sirkus. Þessi sýning er dæmi um frábæra hópvinnu. Ef einn hlekkur bregst, þá hrynur allt.

Áhorfendur stöppuðu í gólfið, vildu meira – hrópuðu „encore“, „encore“, alveg eins og forðum, þegar allt gekk vel. Að tjaldabaki hefur eflaust verið grátið og hlegið, faðmað og kysst – allir verið vinir. Og einhvern tíma í framtíðinni verður þetta kvöld í leikhúsinu bara dýrmæt minning, sem yljar. Njótið á meðan varir.

Einhvern tíma í framtíðinni verður þetta kvöld í leikhúsinu bara dýrmæt minning, sem yljar

Mynd: Hörður Sveinsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Opinberar smáatriðin í stórfurðulegum samning sem hann og kærastan hafa gert með sér

Opinberar smáatriðin í stórfurðulegum samning sem hann og kærastan hafa gert með sér
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Fór að leita uppi draugahús á Ítalíu með kærastanum – Endaði líf sitt sem „mannleg fórn“

Fór að leita uppi draugahús á Ítalíu með kærastanum – Endaði líf sitt sem „mannleg fórn“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni á blaði hjá Arsenal

Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni á blaði hjá Arsenal
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United
Eyjan
Fyrir 14 klukkutímum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum
Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Dæmd fyrir líkamsárás á hvort annað

Dæmd fyrir líkamsárás á hvort annað
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Verk og vit sett með pomp og prakt

Verk og vit sett með pomp og prakt