fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Bára spjallar um Allt eitthvað sögulegt

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 20. september 2018 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á sunnudag kl. 14 verður Bára Kristinsdóttir með listamannsspjall í tengslum við sýningu sína Allt eitthvað sögulegt í Hafnarborg.

Bára Kristinsdóttir bregður upp næmri og heillandi mynd af heimi sem er að hverfa. Ljósmyndir hennar gefa innsýn í líf tveggja eldri manna á nælonhúðunarverkstæði í útjaðri Reykjavíkur þar sem tíminn hefur staðið í stað. Á árum áður var þetta fjölmennur vinnustaður þar sem reksturinn blómstraði og unnið var handvirkt upp á gamla mátann. En með nútímatækni kom að því að handbragð þeirra var ekki lengur eftirsótt og fyrirtækið laut í lægra haldi fyrir kínverskri verksmiðjuframleiðslu sem yfirtekið hefur markaðinn.

Bára lærði ljósmyndun í Gautaborg. Hún hefur sýnt á einkasýningum og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði á Íslandi og erlendis. Má hér nefna einkasýningarnar Heitir reitir í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og Umhverfi bróður míns sem sýnd var í Gallerí Anima og tekið þátt í samsýningum í Scandinavia House í New York og Frankfurter Kunstverein. Bára hefur einnig unnið sem auglýsinga- og fréttaljósmyndari í gegnum tíðina og myndar meðal annars reglulega fyrir The New York Times. Hún er stofnfélagi Félags íslenskra samtímaljósmyndara, FÍSL. Þá stofnaði Bára og hefur rekið Ramskram, sem er sýningarrými fyrir samtímaljósmyndun, síðustu tvö árin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“