fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Norræn hönnunarkeppni um sjálfbæra stóla, nýja eða gamla

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 9. september 2018 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hleypt hefur verið af stokkunum norrænni hönnunarkeppni með áherslu á hönnun sjálfbærra stóla. Þeir sem komast í úrslit og sigurvegarar keppninnar verða kynntir í norræna skálanum á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Póllandi í desember.
 
Norræna ráðherranefndin kallar eftir tillögum frá húsgagnahönnuðum og húsgagnaframleiðendum á Norðurlöndum, sem eru hvattir til að líta yfir verk sín og rýna frá sjónarhorni sjálfbærni. Í kröfum neytenda gætir aukinnar vitundar um sjálfbærni á heimsvísu.
 
Þegar norrænir hönnuðir og framleiðendur fella sjálfbæra þætti inn í hönnun hversdagslegra hluta, ryðja þeir smám saman brautina fyrir aðra. Þess vegna vill norræna ráðherranefndin með þessari keppni takast á við þá áskorun sem felst í sjálfbærri hönnun með því að leita nýrra lausna; nýja hönnun eða jafnvel frumgerðir, sem og hönnun sem er þegar komin á markað.
 
Tobias Grut, vörumerkjastjóri „The Nordics“, norrænu ráðherranefndarinnar:
Við viljum ná til allra norrænna hönnuða, ekki aðeins nafnkunnra fyrirtækja og framleiðenda heldur einnig skapandi grasrótar. Við viljum sýna leiðtogum heimsins norræna hönnun og undirstrika þannig hve mikilvægt hlutverk hönnun og aðferðafræði hönnunar getur leikið til að ná sjálfbærum þróunarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Hægt er að senda inn tillögur að vel hönnuðum og sjálfbærum stólum til 3. október. Stólarnir skulu þegar vera í framleiðslu eða frumgerðir til af þeim.
Sjá nánar hér.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Í gær

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hjónabandsráðgjafi segir þetta merkið um að sambandið sé búið

Hjónabandsráðgjafi segir þetta merkið um að sambandið sé búið
Fókus
Fyrir 3 dögum

Snorri vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar Sigmundur Davíð og Bergþór bönkuðu upp á

Snorri vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar Sigmundur Davíð og Bergþór bönkuðu upp á
Fókus
Fyrir 4 dögum

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan
Fókus
Fyrir 5 dögum

Aðdáendur Taylor Swift halda ekki vatni eftir nýjasta uppátæki hennar

Aðdáendur Taylor Swift halda ekki vatni eftir nýjasta uppátæki hennar