Í nýrri stiklu þáttanna House of Cards ,sem sýndir hafa verið á Netflix, lítur allt út fyrir að aðalpersóna þáttanna hingað til verði drepinn. Frank Underwood, sem leikinn var af Kevin Spacey hefur verið aðalpersónan allar þáttaraðirnar hingað til, en eftir að Spacey var ásakaður um kynferðislega áreitni tilkynntu framleiðendur þáttanna að hann myndi ekki lengur taka þátt í gerð þáttanna.
Í stiklunni sést kona Frank Underwood, Claire Underwood sem er leikin af Robin Wright, standandi nálægt legsteini með nafni hans á. Stikluna má sjá hér að neðan.
You should have known. pic.twitter.com/UFGplyDSY1
— House of Cards (@HouseofCards) September 5, 2018