Í ár, þann 10. desember, verða liðin 70 ár síðan Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt af 48 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna, þar á meðal Íslandi. Til að fagna þessum tímamótum hafa sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi, upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna, Rithöfundasamband Íslands, og Hugvísindastofnun Háskóla Íslands ákveðið að efna til smásagnasamkeppni.
Samkeppnin er opin öllum. Engar sérstakar kröfur eru gerðar um efni sagnanna, einungis að þær fjalli á einn eða annan hátt um mannréttindi eða skort á þeim og allt þar á milli. Þriggja manna dómnefnd mun taka við innsendum verkum og verður farið í einu og öllu eftir reglum Rithöfundasambands Íslands um slík verk.
Skilafrestur á smásögum er 10 Október. Dómnefnd skipa þau Ástráður Eysteinsson prófessor, Gauti Kristmannsson prófessor og Halldóra K. Thoroddsen rithöfundur. Nánari upplýsingar um smásagnarkeppnina má finna hér.