fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

5 norrænar kvikmyndir tilnefndar til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2018 – Kona fer í stríð er framlag Íslands

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 21. ágúst 2018 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Haugasundi nú fyrir stuttu var  tilkynnt hvaða fimm kvikmyndir frá Norðurlöndunum fimm (Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð) hljóta tilnefningu til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2018, en þau verða veitt í ár í 15. skiptið.

Kvikmyndirnar fimm sem tilnefndar eru til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2018 eru:

Ísland: Kona fer í stríð (enskur titill: Woman at War)

í leikstjórn Benedikts Erlingssonar (leikstjórn / handrit), Ólafur Egill Egilsson (handrit). Framleiðendur: Marianne Slot, Carine Leblanc og Benedikt Erlingsson.

Danmörk: Vetrarbræður (á frummáli: Vinterbrødre / enskur titill: Winter Brothers)

í leikstjórn Hlyns Pálmasonar (leikstjórn / handrit). Framleiðendur: Julie Waltersdorph Hansen, Per Damgaard Hansen og Anton Máni Svansson.

Finnland: Góðhjartaði drápsmaðurinn (á frummáli: Armomurhaaja / enskur titill: Euthanizer)

í leikstjórn Teemu Nikki (leikstjórn / handrit). Framleiðendur: Jani Pösö og Teemu Nikki.

Noregur: Thelma

í leikstjórn Joachim Trier (leikstjórn / handrit), Eskil Vogt (handrit). Framleiðandi: Thomas Robsahm.

Svíþjóð: Korparna (enskur titill: Ravens)

í leikstjórn Jens Assur (leikstjórn / handrit). Framleiðendur: Jan Marnell, Tom Persson og Jens Assur.

[videopress ZwbmeHtP]

 

Rökstuðningur íslensku dómnefndarinnar vegna myndarinnar Kona fer í stríð:

Listaverk Benedikts Erlingssonar lyftir umræðunni um umhverfismál upp á annað plan. Allt frá upphafi myndarinnar er hægt að láta sér í léttu rúmi liggja hvort menn eru sammála boðskapnum eða ekki. Það er alltaf hægt að halda með persónunum, alltaf hægt að skilja baráttu þeirra og láta heillast af snjöllum lausnum í myndatöku, handriti og leik.

Leikstjórnin er afbragð, hlutverkaskipan ekki síðri. Halldóra á stórleik, svo afslöppuð í baráttu sinni, svo afslöppuð í leik, svo mikið afbragð kvenna.

Kvikmyndatakan er einnig afbragðsgóð, hver einasta hreyfing kamerunnar nær að fanga atriðin sem skipta máli.

Handritshöfundar fylgja öllum formúlum og reglum við að byggja karakter en eru samt nógu djarfir til að taka áhættu með persónur sínar, þannig að handritið lyftist upp úr formúlunni. Tónlistin er sérstakur kapítuli í heildarverkinu, verður í raun órjúfanlegur hluti frásagnarinnar og tónlistarmennirnir í senn landvættir og verndarenglar.

Kona fer í stríð er sterk mynd og áhrifarík, full af sköpunargleði, og það sem skiptir ekki hvað minnstu, svo dásamlega skemmtileg á að horfa.

Dómnefndina skipa: Hilmar Oddsson, Börkur Gunnarsson, Helga Þórey Jónsdóttir.

Markmið verðlauna Norðurlandaráðs er að auka áhuga á norrænu menningarsamfélagi

Markmið verðlauna Norðurlandaráðs, ein eftirsóttustu verðlaunin á Norðurlöndunum, er að auka áhuga á norrænu menningarsamfélagi og samstarfi um umhverfismál, svo og að veita verkefnum sem skarað hafa fram úr á sviði lista eða umhverfismála athygli. Kvikmyndaverðlaunin verða veitt mynd í fullri lengd sem framleidd er á Norðurlöndunum og gerð til sýningar í kvikmyndahúsum, ásamt því að hafa mikið listrænt gildi og eiga rætur í norrænni menningu að verulegu leyti, og skara fram úr hvað varðar listrænan frumleika og samtvinna og efla hina margvíslegu þætti formsins svo úr verði sannfærandi og heilsteypt verk. Verðlaunaféð nemur 350 þúsund dönskum krónum og skiptist jafnt milli handritshöfundar, leikstjóra og framleiðanda. Það undirstrikar að kvikmyndagerð sem listgrein er fyrst og fremst afurð náins samspils þessara þriggja þátta.

Sigurvegari Kvikmyndaverðlaunanna síðasta ár var finnska myndin Little Wing í leikstjórn Selma Vilhunen. Verðlaunin eru þó ekki alls ókunnug Íslendingum, en tvívegis hafa hin eftirsóttu verðlaun hlotnast íslenskum kvikmyndum, Fúsi í leikstjórn Dags Kára (2015), Hross í Oss í leikstjórn Benedikts Erlingssonar (2014). Að þessu sinni á Benedikt Erlingsson því aftur kost á að hampa titlinum, en er þó í samkeppni við leikstjórannn Joachim Trier sem vann verðlaunin fyrir Louder Than Bombs (2016). Þar fyrir utan keppir íslenski leikstjórinn Hlynur Pálmason í fyrsta skiptið um verðlaunin eftirsóttu, en þessir vel þekktu þrímenningar hafa allir frumsýnt nýju myndirnar sínar á nokkrum af þeim allra mikilvægustu alþjóðlegu kvikmyndahátíðum heimsins í 2017 og 2018.

Vinningshafinn verður tilkynntur við hátíðlega athöfn þriðjudaginn 30. október 2018 í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Osló, Noregi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“