„Íslenskt hinsegin skemmtanalíf hefur verið alls konar í gegnum árin, leynt og ljóst, hávært og lágvært.“ Þetta segir í blaði Hinsegin daga um hið svonefnda Hinsegin pöbbarölt, sem hefst í kvöld, föstudag, klukkan sex. Í blaðinu segir einnig að samkynhneigðir karlmenn á Íslandi hafi daðrað við hermenn á Borginni á fimmta áratug síðustu aldar, að samkynhneigðar konur hafi leitað skjóls í Stúdentakjallaranum og að dragið hafi blómstrað á Rauðu myllunni.
Gunnlaugur Bragi Björnsson, viðskiptafræðingur og formaður Hinsegin daga, lýsir þessari spennandi nýjung sem byggir að hluta til á grein sem Hilmar Hildarson-Magnússon tók saman á 30 ára afmæli Samtakanna ’78 árið 2008. „Þá tók Hilmar umfjöllun á söguna og hvernig skemmtanalífið fór fram og hefur þróast. Þessi ferð okkar byggir svolítið á hans grein og verða heimsóttir þarna nokkrir staðir með sögu og nokkrum drykkjum í leiðinni,“ segir Gunnlaugur.
Þetta er í fyrsta skiptið sem Hinsegin pöbbaröltið fer fram og verður gengið frá Hlemmi og endað á Naustinu en þaðan er örstutt rölt að gömlu höfninni þar sem hefst sigling klukkan 21.
„Í gegnum tíðina hafa verið fjölmargir hinsegin skemmtistaðir, sjaldnast margir í einu, en bæði hinsegin staðir eða staðir sem ýmist fólk hefur tekið að sækja og gert að sínum að einhverju leyti. Þarna eru auðvitað ýmsir aðrir skemmtistaðir eða einfaldlega allt annar rekstur í dag, en þarna ætlum við að stoppa og skyggnumst inn í þá stemningu sem þarna var. Einnig ætlum við að heyra sögur um hvað gerðist og hvað fólkinu fannst sem sótti þessa staði á þeim tíma.“
Að sögn Gunnlaugs er um lítinn viðburð að ræða með takmarkað miðaframboð en segir hann fólk hafa almennt tekið vel í hugmyndina. „Þetta fer fram á íslensku en ef vel gengur er aldrei að vita nema við endurtökum leikinn seinna og þá mögulega á öðrum tungumálum, þannig að erlendir gestir geti átt auðveldara með að slást í hópinn,“ segir Gunnlaugur.