fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Extreme Chill Festival – Leyndardómsfullt ferðalag um rafræna Reykjavík

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 24. júlí 2018 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miðasala er hafin á tónlistarhátíðina Extreme Chill Festival sem fer fram í Reykjavík dagana 6.-9.september næstkomandi, en þetta er 9.árið sem hátíðin er haldin. 

Hátíðin er 4 daga tónlistarveisla þar sem íslenskir og erlendir listamenn með ólíkan bakgrunn á öllum aldri mætast í sköpun sinni undir áhrifum íslenskrar náttúru. Þetta verður leyndardómsfullt ferðalag um rafræna Reykjavík.

Markmið hátíðarinnar er að kynna íslenska og erlenda raftónlistarmenn og tengja saman ólík listform, hljóðheim raftónlistarinnar og lifandi myndheim(visuals). Að tengja saman erlenda og innlenda tónlistar- og videó/myndlistarmenn og sköpun þeirra ásamt því að vekja athygli á rafrænni Reykjavík, raftónlistarhöfuðborg Íslands.

 

Í ár kemur mikill fjöldi listamanna fram á hátíðinni sem verður með enn stærra sniði en áður. Þarna koma saman ólíkir listamenn frá tilraunakenndum listamönnum til klassískrar listamanna. Þar á meðal: Jan Jelinek, Bára Gísladóttir, Banco De Gaia, Dj Flugvél og Geimskip, Marsen Jules, Ragnhild May, Astrid Sonne, Andrew Heath, Sillus, Mankan (Kippi Kaninus & Tom Manoury), og fleiri og fleiri.

Hátíðin mun eiga sér stað á fjórum mismunandi stöðum í miðborginni: Harpa (Kaldalón), Gamlabíó, Húrra, Fríkirkjan Í Reykjavík ásamt nokkrum minni stöðum til viðbótar (auglýst síðar).

Hátíðin hefur vakið mikla athygli víða um heim og var t.d. valin ein af eftirtektaverðustu tónlistarhátíðum 2012 í “The Guardian” sökum einstakrar tengingar tónlistar og náttúru.

Extreme Chill er hátíð sem setur ávallt markmiðin hærra með hverju ári og hefur nú verið haldin bæði í Berlín og víða um land og hefur líka verið í samstarfi við ýmsar hátíðir bæði hérlendis og erlendis.

Hátíðar passinn kostar aðeins 8.900 kr. fyrir alla fjóra dagana, en síðustu ár hefur selt upp og komumst færri að en vildu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan
433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið
Eyjan
Fyrir 3 klukkutímum

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Stuðningsmenn Liverpool súpa hveljur – Af hverju er húsið hans komið á sölu?

Stuðningsmenn Liverpool súpa hveljur – Af hverju er húsið hans komið á sölu?
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Guðmundur H. Garðarsson er látinn

Guðmundur H. Garðarsson er látinn
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta