fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024

Leiðsögn sýningarstjóra á síðasta sýningardegi Leikreglna Elina Brotherus

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 24. júní 2018 16:00

Sjálfa af Elinu Brotherus og Birtu Guðjónsdóttur, fyrir framan verk Elinu „4:33“.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á morgun, sunnudaginn 24. júní kl.14 verður Birta Guðjónsdóttir, deildarstjóri sýningadeildar í Listasafni Íslands, með leiðsögn um sýningu eins þekktasta ljósmyndara samtímans, Elinu Brotherus í Listasafni Íslands. Sýningu Elinu Brotherus, Leikreglur, lýkur sama dag.

Leiðsögnin mun hafa sjálfsmyndina og sjálfuna sem útgangspunkt, þræði er hafa verið gegnumgangandi í verkum Elinu Brotherus frá upphafi listferils hennar á 10. áratugnum.

Elina Brotherus (f. 1972 í Finnlandi) fæst að mestu við gerð sjálfsmynda og landslagsmynda. Í verkum Elinu má skynja sterka nálægð hennar sjálfrar en hún kemur fyrir í öllum ljósmynda- og vídeóverkum sýningarinnar, berskjölduð og hispurslaus. Verkin eru unnin á árunum 2016-2017 og einkennast af marglaga frásögnum sem sveiflast á milli kímni og trega. Í mörgum þeirra setur Elina sér leikreglur og fer eftir þeim innan ramma myndavélarinnar, sem er í senn leikfélagi hennar og sálarspegill.
Verk Elinu vöktu snemma athygli vegna nálgunar hennar á notkun ljósmiðla til endurspeglunar á tilfinningalífinu og leikriti hins daglega lífs. Hún kannar persónulegar en í senn sammannlegar upplifanir, sjálfsmyndina, tímahugtakið, nærveru og fjarveru ástarinnar.

Elina Brotherus nam ljósmyndun í Helsinki og býr í Finnlandi og Frakklandi. Hún hóf að sýna verk sín í lok 10. áratugarins sem hluti af hinum þekkta Helsinki School hópi ljósmyndara í Finnlandi og hafa verk hennar síðan verið sýnd víða, svo sem í Centre Pompidou í París; Neue Berliner Kunstverein í Berlín; Þjóðarlistasafni Finnlands Ateneum í Helsinki og Louisiana nútímalistasafninu í Danmörku. Verk Elinu voru sýnd í i8 Gallery í Reykjavík árið 2000 og á samsýningu í Gerðarsafni í Kópavogi árið 2006.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“
Fréttir
Fyrir 2 klukkutímum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum