fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Kom sá og sigraði á Grammy-verðlaununum

Bruno Mars hlaut flest verðlaun á Grammy-verðlaunahátíðinni í nótt

Kristján Guðjónsson
Mánudaginn 29. janúar 2018 11:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grammy-tónlistarverðlaunahátíðin fór fram í nótt. Það var bandaríski R’n’B-tónlistarmaðurinn Bruno Mars sem hlaut flest verðlaun eða sex talsins, fyrir breiðskífu ársins (24K Magic), smáskífu ársins, lag ársins (That’s What I Like), besta R’n’B-flutninginn, bestu R’n’B-plötuna, besta R’n’B-lagið, auk þess sem teymi hans var verðlaunað fyrir hljóðvinnslu á plötunni 24K Magic.

Velgengni Mars kom nokkuð á óvart en flestir höfðu búist við því að rappararnir Kendrick Lamar og Jay-Z myndu sópa til sín helstu verðlaununum. Lamar fékk raunar fimm verðlaun og var með fullt hús í rappflokknum, þar sem hann var verðlaunaður fyrir bestu plötu, besta lag og besta flutninginn, bæði rappaðan og sunginn. Bretinn Ed Sheeran var sigursælastur í flokki popptónlistar, Christ Stapleton í flokki sveitatónlistar og platan A Deeper Understanding með The War On Drugs var valin rokkplata ársins.

Engir Íslendinganna sem voru tilnefndir hlutu verðlaun í sínum flokkum. Kaleo þurfti að lúta í lægra haldi fyrir Leonard Cohen heitnum sem var verðlaunaður fyrir besta rokkflutning, og tónlist Justin Hurwitz fyrir kvikmyndina La La Land var verðlaunuð í stað kvikmyndatónlistar Jóhanns Jóhannssonar úr Arrival í flokknum besta tónlist fyrir sjónrænan miðil. Þá má nefna að heiðurstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Finninn Osmo Vänskä, var einnig tilnefndur fyrir besta klassíska flutning á fimmtu sinfóníu Mahlers með sinfóníuhljómsveit Minnesota en tókst ekki að landa sigri.

Hægt er sjá lista yfir alla Grammy-verðlaunahafana í ár á vefsíðu verðlaunahátíðarinnar.

Sjá einnig: Grammy verðlaunin 2018: Báru hvítar rósir til stuðnings #metoo

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433
Fyrir 13 klukkutímum

Enska úrvalsdeildin: Liverpool fór langt með að stimpla sig út úr titilbaráttunni – United þurfti að hafa fyrir sigrinum

Enska úrvalsdeildin: Liverpool fór langt með að stimpla sig út úr titilbaráttunni – United þurfti að hafa fyrir sigrinum
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sjáðu markið: Hólmar kom Val yfir eftir frábæra hornspyrnu Gylfa

Sjáðu markið: Hólmar kom Val yfir eftir frábæra hornspyrnu Gylfa
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
Eyjan
Fyrir 17 klukkutímum

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands