Á þriðja tug handrita barst í samkeppni um Svartfuglinn
Á þriðja tug handrita barst í samkeppni um Svartfuglinn, hin nýju glæpasagnaverðlaun sem Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson hafa stofnað til í samvinnu við útgefanda sinn, Veröld. Verðlaunin verða afhent í fyrsta sinn í apríl næstkomandi. Frestur til að skila inn handriti var nú til áramóta.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var fjölmiðlum.
Þar segir að verðlaunin séu veitt fyrir handrit að áður óbirtri glæpasögu og er við það miðað að sagan komi út hjá Veröld í upphafi Viku bókarinnar í apríl ár hvert. Verðlaunin nema 500.000 krónum auk hefðbundinna höfundarlauna samkvæmt rammasamningi Félags íslenskra bókaútgefenda og Rithöfundasambands Íslands. Einnig fær sá sem ber sigur úr býtum sérstakan verðlaunagrip.
Þá býðst þeim sem hlýtur Svartfuglinn samningur við umboðsmanninn David H. Headley en tímaritið Bookseller útnefndi hann sem einn af 100 áhrifamestu mönnum breskrar bókaútgáfu árið 2015. Yrsa og Ragnar skipa dómnefndina um verðlaunin ásamt Bjarna Þorsteinssyni, útgáfustjóra Veraldar.
Markmið Yrsu og Ragnars með þessum nýju verðlaunum er að hvetja höfunda til að spreyta sig á þessu bókmenntaformi, greiða þeim leið til útgáfu og stuðla að því að fleiri skrifi bækur á íslenskri tungu. Jafnframt vonast þau til að verðlaunin hjálpi nýjum höfundum að komast að hjá erlendum bókaforlögum.