fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024

Landsliðsbúningar sem skítlúkka

Tanja Huld Guðmundsdóttir og Loji Höskuldsson hanna landsliðsbúninga fyrir íþrótta- og listafólk

Kristján Guðjónsson
Sunnudaginn 26. mars 2017 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mottóið sem við höfum haft að leiðarljósi allan tímann er að þetta verður að skítlúkka,“ segir Loji Höskuldsson tón- og myndlistarmaður og Tanja Huld Leví Guðmundsdóttir fatahönnuður tekur undir.

Á Hönnunarmars um helgina munu þau frumsýna nýja línu landsliðsbúninga íþrótta og lista, sem þau hafa hannað og nefna „Upp með sokkana!“ Þau vonast til að búningarnir, sem eru innblásnir af séríslenskum hversdagsleika: brauðtertum, stormviðvörunum og kaotískum gólfflötum íslenskra íþróttahúsa, muni nýtast jafnt afreksfólki sem áhugamönnum í bæði list- og íþróttaheiminum.

Tilbúin þegar ÍSÍ hefur samband

„Þetta er tillaga að nýjum landsliðsbúningi fyrir íþróttir og listir, sameiningartákn fyrir þessar greinar,“ segir Tanja Huld en þau Loji eiga það sameiginlegt að starfa á sviði listarinnar en vera mikið áhugafólk um íþróttir – Loji spilaði fótbolta með Fram upp alla yngri flokkana en Tanja handbolta með Gróttu. Þau segja að þessum tveimur sviðum hafi of oft verið stillt upp sem andstæðum sem fólk þurfi að velja á milli en með nýju búningunum vilja þau sameina listamenn og íþróttafólk. Þau benda á að þessar greinar séu í raun ekki svo frábrugðnar: íþróttir snúist um leikni, fimi, snilld eða list, á sama tíma og listin sé einfaldlega sú íþrótt að búa til eitthvað fagurt eða eftirtektarvert.

„Ég myndi vilja sjá Egil Sæbjörnsson mæta í þessum búningi á Feneyjatvíæringinn, sjá svo kvennalandsliðið í fótbolta og alla stuðningsmennina þeirra mæta í honum á EM í sumar. Svo gæti Svala mætt í honum á Eurovision-keppnina,“ segir Tanja og hlær. „En músan okkar var Óli Stef. Hann er bæði íþróttamaður og mjög skapandi, það má því segja að hann sameini þetta tvennt. Ef hann er til í að mæta á opnunina þá verður hann heiðursgestur.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hvaða fagurfræði eruð þið að vinna með í búningunum?

„Við erum að vinna með myndefni sem er íslenskt án þess að vera með einhverja þjóðrembu. Þetta er ekki íslenski fáninn, lundinn eða þessi týpísku tákn,“ svarar Tanja. „Við sækjum frekar innblástur í íslenskan hversdagsleika og sjáum fegurðina í honum. Þetta eru þeir hlutir sem sameina okkur án þess að við tökum eftir því, til dæmis brauðtertur og stormurinn Diddú…“

„… og línurnar á parketum í íþróttahúsum,“ skýtur Loji inn í. „Það eru alltaf alveg sjötíu línur á gólfinu út um allt svo það sé hægt að samnýta salinn og spila allar íþróttir. Þetta er mjög íslenskt.“

„Já, og svo hefur Loji verið að nálaþæfa með íslenskum lopa,“ bætir Tanja við.

Það hljómar svolítið eins og útlitið skipti meira máli en þægindin. Munu íþróttamenn alveg vilja nota búningana?

„Jájájá, þetta er lífræn bómull, mjög þægilegt!“ svarar Tanja.

„Síðan erum við að nota endurunnið pólýester, þannig að við erum líka að velja umhverfisvænni kostinn. Við erum sem sagt að sameina fagurfræði og praktík. Við verðum með tvö sett til sýnis á föstudaginn, annars vegar buxur, hettupeysu og jakka, og svo hins vegar stuttbuxur og stuttermabol. Svo verðum við líka með sundskýlur og handklæði. Seinna meir erum við alveg opin fyrir því að taka þetta lengra og gera sérhæfða búninga fyrir hverja íþrótt. Við verðum tilbúin þegar ÍSÍ hefur samband,“ segir hún og Loji bætir við: „Núna erum við að einbeita okkur að þessum sýningarhlutum sem verða allir gerðir í höndunum og sérstaklega vandað til verks. Draumurinn væri svo að fá að klæða íslensku íþróttamennina sem ganga inn á hlaupabrautina við opnunarathöfn næstu Ólympíuleika í heilgalla frá okkur Tönju.“

Vindsegl og strigapokar

En hvað er það við íþróttabúninga sem er svona spennandi?

„Mér finnst íþróttabúningar svolítið magnað fyrirbæri,“ segir Loji. „Liðið er sameinað með einhverjum ákveðnum lit. Það er alltaf einhver áhugaverð saga á bakvið litinn og búninginn. Á hverju ári breytist svo eitthvað örlítið í búningnum og smám saman þróast þeir. Í dag er krafa um að þeir séu þröngir og þægilegir en á tíunda áratugnum voru þeir eiginlega eins og vindsegl. Ég á til dæmis gamlan Aston Villa-búning sem mamma keypti á mig níutíu og eitthvað. Ég var bara tíu ára þegar ég fékk hann, en enn þann dag í dag er hann of stór á mig. Það er eiginlega fáránlegt,“ segir Loji og hlær.

„Það er líka áhugavert hvernig búningurinn fór úr því á einhverjum tímapunkti að vera bara eitthvað sem aðskildi tvö lið á vellinum og þróuðust í það að vera sameiningartákn fyrir alla sem tengjast liðinu. Fyrst þegar byrjað var að hanna svona fótbolta-„kitt“ var þetta bara hugsað fyrir krakka, en í dag er það aðallega fullorðið fólk sem kaupir búningana til að geta stutt liðið sitt,“ segir Tanja.

Ég hugsa að íþróttabúningar séu kannski fyrstu hönnunarvörurnar sem kveiki virkilegan áhuga hjá sumum krökkum, ég man sjálfur eftir því að hafa haft mikinn áhuga á fótboltabúningum, teiknað hina ýmsu búninga og búið til mína eigin.

„Já, fólk hugsar kannski ekki oft um það en hönnun er alls staðar í kringum okkur, það er ekki bara Dolce & Gabbana og einhver svoleiðis merki. Ég held í raun að flestir hafi áhuga á hönnun á einhverju sviði þótt þeir fylgist ekki með tískuvikunni í París.“

Þetta er fyrsta hönnunarverkefnið þitt, Loji, en hefur þú lengi haft áhuga á hönnun?

„Já, þetta er alveg nýtt fyrir mér en ég man hvað mér þótti hönnun geðveikt spennandi þegar ég var yngri. Ég man til dæmis eftir að hafa gert flík í hannyrðum í barnaskóla, ég sett eitthvert logo á strigapoka og gerði bol úr honum. Það var reyndar einn óþægilegasti bolur sem ég hef prófað, striginn stakk svo mikið, en það hefur alltaf blundað í mér sú hugmynd að gera meira af þessu. Þess vegna var mjög skemmtilegt að Tanja stakk upp á þessu samstarfi.“

„Loji er mjög góður hönnuður, hann skynjar alveg hvað skítlúkkar og hvað ekki,“ bætir Tanja við.

Landsliðsbúningarnir verða frumsýndir í anddyri Vesturbæjarlaugar á föstudag klukkan 17.00 en þar verður einnig boðið upp á heimabakaða brauðtertu frá mömmu Loja.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Hörmulegar vítaspyrnur kostuðu City – Real Madrid komið í undanúrslit

Hörmulegar vítaspyrnur kostuðu City – Real Madrid komið í undanúrslit
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

United vill selja en hingað til hefur ekkert félag sýnt áhuga

United vill selja en hingað til hefur ekkert félag sýnt áhuga
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Dóttir stjórans kemst í fréttirnar – Skiptir um kærasta en valdi samherja hans í landsliðinu

Dóttir stjórans kemst í fréttirnar – Skiptir um kærasta en valdi samherja hans í landsliðinu
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Þrátt fyrir framhjáhald og vesen mætti Walker á fæðingardeildina og hélt í hönd eiginkonunnar

Þrátt fyrir framhjáhald og vesen mætti Walker á fæðingardeildina og hélt í hönd eiginkonunnar
Fókus
Fyrir 15 klukkutímum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Laus úr fangelsi og brátt laus úr hjónabandi – Þetta var dropinn sem fyllti mælinn

Laus úr fangelsi og brátt laus úr hjónabandi – Þetta var dropinn sem fyllti mælinn
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Rúnari hrósað í hástert – „Hefur heillað mann“

Rúnari hrósað í hástert – „Hefur heillað mann“