fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Vicky með nýjan rokkslagara

Einar Þór Sigurðsson
Föstudaginn 17. nóvember 2017 11:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska hljómsveitin Vicky gefur í dag út splunkunýtt lag sem er það fyrsta síðan platan þeirra Cast a Light kom út árið 2011.

Hljómsveitin vakti á sínum tíma mikla athygli hérlendis og á erlendri grundu. Fyrsta plata sveitarinnar kom út árið 2008 og fyrsta smáskífan af þeirri plötu, Blizzard, var mikið spiluð í útvarpi og sat lengi í toppsæti vinsældarlista.

Í kjölfarið fór sveitin í tónleikaferðalög, meðal annars til Kína og Bandaríkjana. Árið 2011 kom svo önnur plata Vicky út, Cast a Light. Sú plata fékk virkilega góða dóma og var til dæmis á lista The Rolling Stone Magazine yfir bestu „under the radar“ plötur það árið. Platan fékk einnig góðar viðtökur hér á landi.

Lagið Feel Good dvaldi margar vikur á toppi vinsældalista X-977 og hlaut góða spilun á flestum öðrum útvarpsstöðum. Nýja lagið, Run from Me, er poppaður rokkslagari sem sýnir að bandið hefur engu gleymt og stefnir á útgáfu þriðju breiðskífunnar með vormánuðum 2018. Lagið er tekið upp í stúdíó Hljóðverk og sá Einar Vilberg um upptöku og eftirvinnslu.

Vicky skipa Eygló Scheving, Karlotta Laufey Halldórsdóttir, Ástrós Jónsdóttir, Baldvin Freyr Þorsteinsson og Orri Guðmundsson.

Hér að neðan má hlusta á lagið Run From Me:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 klukkutímum
Pétur Einarsson látinn
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
EyjanFastir pennar
Fyrir 10 klukkutímum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað ætti forseti að gera?

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað ætti forseti að gera?