fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Lil Peep látinn

Kristján Guðjónsson
Föstudaginn 17. nóvember 2017 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski emo-rapparinn Lil Peep er látinn aðeins 21 árs að aldri. Dánarorsök hefur ekki verið gefin upp, en talið er að hann hafi látist af of stórum skammti af vímuefnum á miðvikudag.

Tónlistarmaðurinn, sem hét réttu nafni Gustav Åhr, vakti fyrst athygli fyrir rúmlega tveimur árum með tilfinningaþrungnu rappi þar sem hann talaði fjálglega um eiturlyfjaneyslu, þunglyndi og sjálfsvígshugsanir. Hann þróaði áfram minni úr hefðbundinni emó-tónlist – þunglyndislegri og tilfinningalega þjakaðri rokktónlist – og blandaði saman við kalda hljóðmynd trap-tónlistar dagsins í dag.

Fyrsta plata Lil Peep, Come over when you’re sober, pt. 1, kom út í sumar og höfðu margir fjölmiðlar spáð því að stjarna hans myndi rísa hratt á næstunni. Fjölmargir þekkir rapptónlistarmenn hafa vottað Lil Peep virðingu sína á samfélagsmiðlum, þar á meðal Diplo, Lil B og Post Malone.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Læknar hafa áhyggjur af áberandi aukaverkunum Ozempic – Augljóst meðal elítunnar í Hollywood

Læknar hafa áhyggjur af áberandi aukaverkunum Ozempic – Augljóst meðal elítunnar í Hollywood
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“