fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
FókusKynning

Verndaðu húðina þína fyrir óæskilegum áhrifum sólarinnar: Evy veitir vörn í allt að sex tíma í einu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 14. maí 2018 16:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumarið er tími sólarinnar, flestir Íslendingar taka henni fagnandi og margir eiga í vændum sólböð ýmist hér á landi eða á erlendum sólarströndum á næstu mánuðum. Sólin er yndisleg en hún henni fylgja líkar hættur og vandamál sem nauðsynlegt er að bregðast við með góðri sólarvörn.

Evy Technology er margverðlaunuð sólarvörn sem helsta keppnisfólk okkar í íþróttum hefur valið sem opinbera sólarvörn sína. Evy hentar einnig almenningi prýðilega og hjálpar okkur öllum að njóta sólarinnar og verjast ókostum hennar.

Evy veitir allt að sex tíma vörn, jafnvel við hinar erfiðustu aðstæður, við íþróttaiðkun, í söltum sjó, í sundi, í þurrum vindi og við mikið snjóendurkast.

Sólin getur skaðað þó að þú brennir ekki

Mikilvægt er að hafa í huga að hægt er að skaðast af sólinni án þess að sólbrenna. Evy inniheldur bæði háa vörn gegn UVA- og UVB-geislum. Þeir síðarnefndu valda sólbruna. UVA-geislar berast hins vegar inn um gluggarúður og geta valdið húðkrabbameini hjá þeim sem vinna mikið fyrir innan glugga, til dæmis flugmönnum. Þá er vert að hafa í huga að snjór endurkastar allt að 85% af sólargeislum og þess vegna er svo margt skíðafólk brennt á sólardögum.

Evy Technology inniheldur sólarvarnarstuðulinn SPF30 sem veitir 97% vörn gegn UVB-geislum og 90% vörn gegn UVA-geislum. Þetta er þrefalt meiri vörn en venja er.

Margverðlaunuð sólarvörn

Evy Technology hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar. Nýlega hlaut varan verðlaun í óháðri alþjóðlegri keppni sem haldin var án styrktaraðila. Um 600 snyrtivörumerki tóku þátt og vann Evy fyrstu verðlaun sem besta SPF-andlitsvaran og besta SPF-líkamsvaran (body product).

Enn fremur valdi tímaritið Tara Evy Technology sem bestu sólarvöru ársins 2017.

Eftirtalin landslið og samtök á Íslandi hafa lýst yfir að Evy Technology er opinber sólarvörn þeirra:

 

Sjá nánar á vefsíðunni http://evy.is/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum