fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Húsasmiðjan: Tvö heimsþekkt merki í reiðhjólum og glæsilegt úrval

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 20. apríl 2018 08:55

reiðhjól

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

heilsíða

Húsasmiðjan er með afar öfluga reiðhjóladeild og er úrvalið mest í verslun Húsasmiðjunnar að Skútuvogi 16. „Undanfarin ár höfum við verið með tékkneska merkið Author, sem eru frábær hjól. Við höfum mest verið í ódýrari hjólum fyrir börn og fullorðna en höfum líka verið að taka inn dýrari hjól fyrir keppnishjólreiðamenn, bæði racer-hjól og fjallahjól,“ segir Þór Austmar hjá Húsasmiðjunni.

Húsasmiðjan kynnir nú til sögunnar nýtt merki til viðbótar við Author-hjólin: „Við erum byrjuð að flytja inn Silverback-hjól frá Þýskalandi og í byrjun maí kemur enn meira inn af þeim. Þetta eru mjög skemmtileg hjól og línan spannar allan skalann rétt eins og Author-hjólin. Það verða meðal annars í boði svokölluð blendingshjól eða hybrid-hjól sem henta bæði á malbiki og malarvegum. Einnig verða hraðskreið götuhjól (racer) og fulldempandi utanbrautarhjól sem henta á mjög erfiðu undirlagi,“ segir Þór.

Silverback er rómað merki sem Húsasmiðjan getur boðið á mjög hagstæðu verði: „Silverback hefur unnið til helstu hönnunarverðlauna á reiðhjólasýningum í Þýskalandi. Hjólin verða á sama verði í Húsamiðjunni og í Þýskalandi og dýrari hjólin verða meira að segja á lægra verði en þar.“

Á föstudaginn verður Þór með kynningu á Author- og Silverback-reiðhjólunum í verslun Húsasmiðjunnar að Skútuvogi 16 frá kl. 14 til 17.

Það er gott að velja sér reiðhjól í Skútuvoginum því starfsmenn þar veita faglega ráðgjöf og eru með greinargott kynningarefni sem liggur frammi í versluninni. Starfsmenn vita til dæmis nákvæmlega hvaða stærð af reiðhjóli barn þarf miðað við stærð barnsins.

 

reiðhjól

Það er líka gott að velja sér reiðhjól í vefverslun Húsasmiðjunnar: https://www.husa.is/netverslun/arstidarvorur/reidhjol-fylgihlutir/. Reiðhjólið er pantað og sótt í næstu verslun, eða  fengið sent heim.

reiðhjól
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum