fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
FókusKynning

Smári special er vinsælastur í Ungó

Kynning

Ungó Keflavík – endurbættur og alltaf vinsæll

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 3. mars 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við erum búin að vera að taka húsið í gegn síðustu tvö ár, bæði að innan og utan, það kláraðist bara fyrir stuttu, þar sem húsið var klætt allt að nýju,“ segir Valgeir Magnússon hjá Ungó, Hafnargötu 6 í Keflavík. Tveir inngangar eru í Ungó, annar í ísbúðina og sjoppuna og hinn á matsölustaðinn, þar sem setjast má niður til að borða eða taka mat með sér heim.

Ungó er þekkt fyrir úrval af góðum skyndibita, pítsum, hamborgurum og pylsum. Vinnandi fólk í Keflavík sækir sér gjarnan hádegismat í Ungó og nemendur úr fjölbrautaskólanum streyma þangað þegar skólinn er.

„Við erum með hefðbundna hamborgara og pizzur, sem eru ótrúlega vinsælar,“ segir Valgeir. „Við erum með nokkrar útgáfur af borgunum og Ungó borgarinn og Smári special eru vinsælastir. Smári special er með frönskum, beikoni og ostastöngum á milli. Það var strákur sem vann hér hjá okkur sem græjaði hann svona handa sér, síðan fékk hann leyfi til að útbúa hann svona handa vinum sínum. Síðan fór fólk að koma og spyrja um borgarann, þannig að við ákváðum bara að setja hann á matseðilinn.“

„Við byggðum staðinn í raun upp á nýtt. Við gerðum miðpunktinn í búðinni að ísbúð og núna er þetta orðin ein af helstu ísbúðum landsins og gefur stærstu ísbúðunum í Reykjavík ekkert eftir. Við erum með 64 tegundir fyrir bragðaref, 18 tegundir af kúluís og fjórar tegundir af ís úr vél,“ Ísinn í Ungó kemur frá Kjörís og er afar vinsæll.

Ungó er fjölskyldufyrirtæki en Valgeir keypti staðinn með foreldrum sínum árið 2004. „Foreldrar mínir eru farnir út úr þessu en ég rek staðinn með eiginkonu minni, Þorgerði Sigurbjörnsdóttur,“ segir Valgeir.

„Ferðamenn eru duglegir að koma til okkar og finnst ísinn stórmerkilegur og að við seljum hann í snjókomu. Þeim finnst mikið sport að taka myndir af sér hér fyrir utan með ísinn.“

Ungó er líka þekkt fyrir veglegan nammibar en ólíkt mörgum öðrum stöðum þá er 50% afsláttur á nammibarnum ekki bara á laugardögum heldur alla helgina, föstudag, laugardag og sunnudag.

Opnunartími í Ungó er frá kl. 9.00 – 23.00 á virkum dögum. Á laugardögum og sunnudögum er opið frá kl. 10 til miðnættis.

Ef þú hefur ekki kíkt í Ungó ennþá er kominn tími til að prófa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum