fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
FókusKynning

Lykilatriði að elda frá hjartanu og nota bara úrvals hráefni

Kynning

Burgers, Firði og Kringlunni

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 3. mars 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég á 40 ára steikingarafmæli og allt hvílir þetta á nokkrum hamborgararéttum sem eru í uppáhaldi hjá mér sjálfum,“ segir Magnús Garðarsson veitingamaður sem rekur staðina Burgers í Kringlunni og Firði Hafnarfirði.

Burgers hefur verið starfandi á Stjörnutorgi í Kringlunni í þrjú ár og í Firði í Hafnarfirði frá því í maí í fyrra. Nýja staðnum í Hafnarfirði hefur verið afskaplega vel tekið og segist Magnús telja að þetta hafi einmitt verið það sem vantaði í Hafnarfjörð; fjölskylduvænan skyndibitastað með gæðamat á hagstæðu verði.

„Það fer nokkuð eftir því í hvernig skapi maður hver uppáhaldsborgarinn er hverju sinni. Stundum vill maður bara grípa með sér einfaldan ostborgara. Stundum vill maður hafa á honum beikon og egg, en stundum vil ég laukhringi, bbq-sósu og bræddan ost. En á mínum 40 ára ferli hafa þessir borgarar alltaf staðið upp úr hjá mér: Béarnaise-borgari, beikon & egg-borgari og bbq-borgari, en sá síðastnefndi er til í útfærslu með bæði nautakjöti og kjúklingi,“ segir Magnús.

Hamborgarar eru uppistaðan á Burgers en aðrir réttir njóta þar líka vinsælda. „Ég lét undan þrýstingi og byrjaði með djúpsteiktan fisk sem hefur mælst mjög vel fyrir. Lambakóteletturnar okkar eru síðan heimsfrægar og útlendingarnir sem hingað koma elska þær, besta lamb sem þeir hafa fengið.“

Elda frá hjartanu og nota besta hráefnið

Opið er á Burgers í Kringlunni á afgreiðslutíma Kringlunnar en staðurinn í Firði er opinn frá 11.30 til 20.00 alla daga vikunnar nema sunnudag þegar er lokað. Vinnandi fólk í Firði og skólanemar sækja staðinn stíft í hádeginu en í eftirmiðdaginn koma þangað margir erlendir ferðamenn með flugrútunni frá Keflavík. Á kvöldin, að sögn Magnúsar, er fjölskyldufólk áberandi. „Það kemur til dæmis fjöldi fólks hingað úr Vallahverfinu og sækir sér kvöldmat heim eða borðar á staðnum. Barnaboxin hérna kosta 950 kr. Þau innihalda 115 g hamborgara, franskar og djús og síðan er leir og leikföng. Börnin eru róleg hérna með matinn sinn og leikföngin og fjölskyldan nýtur þess snæða góðan mat á viðráðanlegu verði. Stöðluð stærð á hamborgurum er alltaf 115 g og tilboð með gosi og frönskum er 1.550 kr. sem er ódýrt miðað við stærðina á borgurunum,“ segir Magnús.

Natni við matreiðslu og gott hráefni eru lykillinn að velgengni, að sögn Magnúsar:
„Það verður að kaupa besta hráefnið, það er lykillinn að því að fólk komi aftur og aftur. Góður matreiðslumaður getur ekki eldað góðan mat úr vondu hráefni. Ég er með franskar frá Garra, Butler, og kjötið kemur frá Kjöthúsinu, framúrskarandi nautakjöt, frábært beikon og meiriháttar kótelettur,“ segir Magnús.

„Síðan er það stórt atriði að elda frá hjartanu, setja sálina í þetta. Gera þetta eins og þú sért að elda handa sjálfum þér. Þetta eru atriði sem ég reyni að kenna starfsfólkinu. Ég hef líka verið heppinn með starfsfólk og er stoltur af því að geta miðlað til þess minni þekkingu og reynslu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum