fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
FókusKynning

Rekstrarvörur: Að gera góða veislu glæsilega

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 2. febrúar 2018 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rekstrarvörur bjóða upp á eitt mesta úrval landsins af dúkum, servíettum, yfirdúkum, kertum og öðrum borðbúnaðarvörum til að gera fallegt borðhald glæsilegt. Að sögn Einars Kristjánssonar, sölustjóra Rekstrarvara, er fyrirtækið stolt af úrvalinu og persónulegu þjónustunni sem er þess aðalsmerki.

„Við aðstoðum fólk við val á öllu sem fæst í versluninni og út frá fjárhagslegu svigrúmi hvers og eins. Þarfir og smekkur fólks er mismunandi og við teljum okkur geta sinnt öllum af kostgæfni. Nú er fermingarundirbúningurinn í fullum blóma og Rekstrarvörur eru með það sem til þarf, hvort sem um kaffi- eða matarboð er að ræða. Hjá okkur starfar fagfólk sem getur veitt viðskiptavinum faglega ráðgjöf. Auk þess er starfsfólkið okkar almennt með mikla reynslu og leiðbeinir fólki við valið. Við erum þjónustufyrirtæki, hingað leitar fólk eftir þjónustu sem við veitum af gleði en þú getur líka skoðað þig um í friði ef þú kýst svo.“

Smart servíettur og dúkar

„Oft eru það fermingarbörnin sjálf sem velja þema og liti veislunnar sinnar, það skiptir oft meginmáli, en aðrir taka ekki afstöðu til slíks og láta foreldrana alveg um undirbúning veislunnar. Sumir velja að vera jafnvel með liti sem einkenna uppáhalds íþróttaliðið, sem getur verið skemmtilegt þema. Það er virkilega gaman að geta boðið upp á svona mikið úrval lita því þá geta allir fundið lit við hæfi. Servíettur eru til í ótal litum, misþykkar og í ýmsum stærðum.

Við erum með ótrúlegt úrval af smart dúkum og servíettum í mörgum litum frá Duni og Tork sem gera góða veislu glæsilega. Hjá okkur fást einnig vönduð kerti frá Bolsius, sem eru bæði smart og á góðu verði. Allir litir eru vinsælir en hvítt, svart og grátt er klassískt og erum við einnig með látlausar gestabækur frá Múlalundi í svörtu og svo hvítu. Það er þægilegt að grípa eina slíka með sér í innkaupunum; allt á einum stað,“

segir Einar.

Allt nema matvaran!

Einar nefnir að fallegir yfirdúkar setji svo punktinn yfir glæsilegt veisluborð en það er einnig hægt að leika sér með þá dúka, sem eru töff og úr flottu efni, og nota sem renninga á borðið eða til að pakka inn gjöfum.

„Rekstrarvörur er með allan borðbúnað sem þarf til þess að slá upp veislu, hvort sem um er að ræða fermingarveislu eða huggulega veislu í sveitinni,“ segir hann. „Suma viðskiptavini vantar bara slíkt; þ.e. glös, diska og annað í þeim dúr. Við erum með allt frá góðum vörum á hagkvæmu verði og upp í hágæðavörur. Hér fást t.d. kristalssglös og svo líka flott plastglös, enda vilja sumir bara hafa einnota borðbúnað og henda öllu þegar veislunni lýkur, ekkert uppvask og vesen! Frauðformin okkar geta verið mjög skemmtileg og handhæg lausn undir t.d. súpur, en það hefur verið mjög vinsælt í veislum hvers konar. Það má segja að þú færð allt í verslun Rekstrarvara til að gera góða veislu glæsilega – nema matinn“

Rekstrarvörur, Réttarhálsi 2, 110 Reykjavík. Sími: 520 6666.
Verslunin er opin virka daga kl. 8.00 – 18.00 og laugardaga kl. 11.00 – 15.00

Heimasíða Rekstrarvara

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum