fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
FókusKynning

Yoga Shala: Fjölbreyttir jógatímar og innrauður hiti

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 5. janúar 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég hef upplifað það margoft að jóga breytir lífi fólks og það er yndislegt að verða vitni að því. Jógaiðkun fer stöðugt vaxandi og þetta er engin bóla,“ segir Ingibjörg Stefánsdóttir hjá Yoga Shala. Stöðin flutti í Skeifuna 7, 3. hæð, í janúar árið 2017 en hefur verið starfandi allar götur frá 2005.

„Það eru til svo margar aðferðir við að iðka jóga, það er að þróast eins og allt annað. Það eru komnir margir stílar og þú getur í raun bara valið það sem hentar þér. Það þarf ekki alltaf að vera líkamlega krefjandi,“ segir Ingibjörg sem hefur upplifað mikla þróun í faginu og fylgist vel með.

„Við bjóðum upp á fjölbreytta jógatíma. Meðal annars bjóðum við upp á svokallað Ashtanga vinyasa jóga sem er grunnurinn að mörgu annars konar jóga eins og t.d. kraftjóga og jógaflæði sem hefur fylgt í kjölfarið. Þetta er nokkuð líkamlegt afbrigði af jóga en hugleiðslan er alltaf með, öndun og slökun. Við bjóðum einnig upp á jógaflæði, jóga nidra djúpslökun, Baptiste kraftjóga, jógakennaranám og skemmtilega viðburði.“

Ingibjörg segir að líkamlegur ávinningur af jógaiðkun sé styrkur, mýkt og liðleiki. Andlegi ávinningurinn er m.a. minni streita og kvíði, aukin andleg vellíðan, meiri núvitund og jákvæðni.

Innrauður hiti slær í gegn

„Við erum fyrsta stöðin sem fór að nota innrauðan hita í salnum. Í stað þess að dæla heitu lofti inn í salinn erum við með hitapanela í loftinu sem eru hljóðlausir og verma salinn á þann hátt að það er verið að hita þig en ekki loftið í kringum þig. Notkun á innrauðum hita hefur þau áhrif að blóðflæði eykst til allra vefja líkamans sem hefur jákvæð áhrif á einstaklinga með t.d. vöðvabólgu og gigt. Innrauði hitinn er hjálpa mörgum og hefur slegið rækilega í gegn,“ segir Ingibjörg.

Fjölbreytt námskeið eru í boði hjá Yoga Shala og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Ingibjörg segir að námskeiðið Stirðir strákar hafi slegið rækilega í gegn og er það fullbókað hvað eftir annað. „Kyrrðarjóga fyrir konur hefur líka slegið í gegn þar sem lögð er áhersla á hugleiðslu og djúpslökun með aðferðum jóga nidra. Hver sem er getur stundað þessa tegund af jóga því aðferðin er í raun áreynslulaus streitulosun þar sem um liggjandi, leidda hugleiðslu og djúpslökun er að ræða.

Námskeiðið Jóganæring er nýtt hjá okkur og er líka fyrir konur. Það samanstendur af jógaflæði, hugleiðslu, öndunaræfingum, djúpslökun – og fræðslu um næringu með áherslu á jákvæðar breytingar.“

Grunnnámskeiðin eru líka alltaf vinsæl og í gangi reglulega.

Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna á vefsíðunni yogashala.is og Facebook-síðu Yoga Shala Reykjavík. Einnig eru upplýsingar veittar í síma 553-0203 eða í gegnum tölvupóst á netfangið yoga@yogashala.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum