fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Kynlíf samkvæmt stjörnumerkjunum

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 14. nóvember 2017 23:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er margt sem stjörnumerkin segja um okkur og þó þau fræði séu ekki algild og fullkomin eru þau alltaf skemmtileg aflestrar. Hér fyrir neðan má lesa um kynlíf stjörnumerkjanna.

Sporðdreki (23. október til 21. nóvember)

Sporðdrekinn er kynferðislegasta stjörnumerkið. Hann heldur haldið áfram og áfram. Hann er mjög ákafur og mjög líkamlegur og kynlíf með honum er reynsla sem þú gleymir ekki svo glatt.

Kynörvunarsvæði Sporðdrekans eru kynfærin. Öll merkin örvast þar, en Sporðdrekinn þarf aðeins létta snertingu til að komast í stuð. Njóttu ferðarinnar!

Bogmaður (22. nóvember til 21. desember)

Bogmenn eru ævintýragjarnir og spennandi, kynlíf á ströndinni eða upp á þaki er eitthvað sem þú gætir upplifað. Bogmaðurinn lifir í núinu og einnar nætur kynni eru vanalega eina sambandið sem hann leggur í. Hann er fær um ást og trúnað, en aðeins einstök manneskja og djúp ást mun ná honum í varanlegt samband.

Kynörvunarsvæði Bogmannsins er innra lærið, léttir kossar og snerting þar fær þá til að spóla af fullnægju.

Steingeit (22. desember til 19. janúar)

Kynlíf með Steingeit er lostafullt og stendur lengi yfir. Hún hefur úthald og getur fullnægt lengi. Þær eru ekki fyrir einhverjar trylltar stellingar en það sem þær gera er óvenjulegt. Þær elska að elska, þannig að þær stunda ekki mikið af einnar nætur kynnum. Leitaðu að sambandi áður en Steingeitin opnar sig fyrir þér og hleypir þér að sér.

Kynörvunarsvæði Steingeitar eru fæturnir. Kitlur, kossar og strokur fyrir aftan hné og hún mun ekki láta þig í friði!

Vatnsberi (20. janúar til 18. febrúar)

Kynlíf með Vatnsbera er skemmtilegt og spennandi. Kynlífið er leikur hjá honum og þeir eru hrifnir af hvatvísi og sjorturum! Ástríða og rómantík er ekki svo mikilvæg fyrir Vatnsberann. Haltu tilfinningunum í skefjum í bólinu með Vatnsbera, af því að hann gæti orðið leiður á þér fljótlega.

Kynörvunarsvæði Vatnsbera eru kálfar og ökklar.

Fiskar (19. febrúar til 20. mars)

Vertu tilbúin í hlutverkaleiki! Fiskar eru mjög kynferðislegir og kynlíf er allt að trúarlegt fyrir þá. Þeir elska að tæla makann og eru mjög líkamlegir í bólinu. Haltu opnum huga og klæddu þig upp fyrir hlutverkaleiki. Þú verður ekki fyrir vonbrigðum, Fiskurinn mun sjá til þess að þú fílar það.

Kynörvunarsvæði Fisksins eru fæturnir og tærnar. Ef þú ert til í það, mun það að sjúga á þeim tærnar færa þá fram yfir brúnina!

Hrútur (21. mars til 19. apríl)

Hrúturinn elskar að ráða í rúminu og vera ofan á! Þeir taka stjórnina í sínar hendur og elska að gera hlutina hratt og vel. Þeir geta orðið harðhentir, þannig að vertu viðbúin.

Kynörvunarsvæði Hrúts eru fyrir ofan háls. Leiktu við hárið á þeim, blástu í eyru þeirra og nartaðu í þau. Hrútur fílar nartið.

Naut (20. apríl til 20. maí)

Ástríða er aðalmálið hér. Naut skortir fjölbreytni í rúminu, en bætir fyllilega upp fyrir það með ástríðufullum ástarleikjum, sem taka langan tíma! Úthald Nautsins heldur þér uppteknum langt fram á nótt.

Kynörvunarsvæði Nauts er hálsinn, kysstu það þar og Nautið bráðnar í höndunum á þér.

Tvíburar (21. maí til 20. júní)

Tvíburinn er mjög viljugur og er til í tuskið hvenær og hvar sem þú vilt! Tvíburinn er handfylli og það tekur á að halda í við hann. Ef þú ert ekki reiðubúinn í þá áskorun, ekki eyða þínum tíma eða tíma Tvíburans. Að reyna nýja hluti og halda kynlífinu fersku mun byggja dýpra kynferðislegt samband.

Kynörvunarsvæði Tvíburans eru hendur og handleggir. Kysstu lófana á þeim og sleiktu á þeim fingurna, þú sérð ekki eftir því.

Krabbi (21. júní til 22. júlí)

Krabbinn er afar líkamlegur og lostafullur elskhugi. Krabbinn elskar að tæla öll skilningarvitin. Hann kveikir á kertum, dreifir rósablöðum og stríðir þér með forleik sem allt leiðir til samfara. Krabbinn getur verið íhaldssamur, en er tilbúinn að reyna nýja hluti ef réttur aðili tælir hann til.

Kynörvunarsvæði Krabbans eru brjóst og brjóstkassi. Krabbinn elskar að láta narta og gæla varlega við geirvörturnar.

Ljón (23. júlí til 22. ágúst)

Ljónið elskar ástríðufulla ástarleiki sem taka langan tíma. Ljónið elskar að snerta og vera snert, nudd spilar mikilvægt hlutverk í forleiknum. Ljónið er ekkert mikið fyrir fjölbreytni, en það er best í því sem það gerir og þú verður ekki fyrir vonbrigðum.

Kynörvunarsvæði Ljónsins er bakið. Nuddaðu Ljónið, knúsaðu það eða klóraðu og það mun hlýða þér í einu og öllu.

Meyja (23. ágúst til 22. september)

Meyjan er minnst kynferðislega stjörnumerkið af þeim öllum. Það þýðir ekki að hún fíli ekki kynlíf, heldur að hún er meira tilbaka og alls ekki fyrir einnar nætur kynni. Þú þarft að taka þér tíma með Meyjunni, en tíminn sem þú verð í hana verður virði ástríðunnar sem hann leiðir í ljós.

Kynörvunarsvæði Meyjunnar er maginn, kysstu og snertu létt til að kveikja á ástríðum hennar.

Vog (23. september til 22. október)

Kynlíf með Vog er draumi líkast. Það er heillandi og líkamlegt. Vogin er ekki fyrir subbulegt kynlíf, þannig að ekki búast við miklu í aftursætinu í bílnum á stefnumóti, það mun ekki gerast.

Kynörvunarsvæði Vogarinnar er mjóbakið. Létt nudd þar mun setja stemninguna. Léttar klípur eða rassskellur munu hafa sömu áhrif, en hafðu samt hemil á þér, Vogirnar fíla ekki allar það sama.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

De Bruyne setti met sem hann hefði heldur viljað sleppa í gær

De Bruyne setti met sem hann hefði heldur viljað sleppa í gær
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

Styttist í barnamenningarhátíð í Reykjavík – Vegleg dagskrá og börnin í aðalhlutverki

Styttist í barnamenningarhátíð í Reykjavík – Vegleg dagskrá og börnin í aðalhlutverki
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Píratar vilja Útlendingastofnun feiga

Píratar vilja Útlendingastofnun feiga
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Kostar sitt að kúka í Lystigarðinum – Akureyrarbær tvöfaldar verðmiðann

Kostar sitt að kúka í Lystigarðinum – Akureyrarbær tvöfaldar verðmiðann
Eyjan
Fyrir 15 klukkutímum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.