fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Rómantískur og huggulegur: Hágæða suðrænn matur á Caruso

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 29. október 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veitingastaðurinn Caruso ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum, enda afar vinsæll og virtur veitingastaður í höfuðborginni. Caruso hefur verið rekinn af hjónunum José Garcia og Þrúði Sjöfn Sigurðardóttur í fimmtán ár og hafa þau ætíð lagt mikið upp úr góðu og fersku hráefni og ljúffengum mat með Miðjarðarhafsívafi. Caruso býður upp á forrétti og salöt, girnilegar pitsur og pastarétti, kjöt, fisk og ýmsa sjávarrétti og ekki má gleyma ljúfum eftirréttum. Andrúmsloftið á Caruso er rómantískt og notalegt og á föstudags- og laugardagskvöldum er gestum boðið upp á ljúfa gítartóna. Á Caruso er hægt að ganga að góðum mat, hlýlegri þjónustu og huggulegu andrúmslofti vísu og þess vegna koma gestirnir aftur og aftur.

Fastir liðir og spennandi nýjungar

„Við höfum alltaf boðið upp á hádegisverð hér á Caruso og ætíð verið með góð hádegistilboð. Þá er matur, bjór, vín, gos og kaffi allt á lækkuðu verði. Yfirleitt er frekar mikið að gera hjá okkur í hádeginu og snögg og góð þjónusta, enda hefur fólk oft tiltekinn tímaramma til að komast í hádegismat úr vinnunni. Við tökum þá mið af því og höfum valið saman léttari og einfaldari rétti af kvöldseðlinum,“ segir Þrúður Sjöfn Sigurðardóttir. Þó svo að um hádegistilboð sé að ræða þá er alltaf vel útilátið á diskana og það fer enginn svangur út af Caruso.

„Einnig erum við með nýjan og betrumbættan matseðil en höldum samt gömlum, klassískum réttum inni eins og t.d. humarsúpunni og lambakórónunni. Meðal nýrra rétta hefur sjávarréttarisottóið slegið í gegn. Nú bjóðum við upp á leikhúsmatseðil sem gildir frá 17.00 til 18.30 og einnig er tilvalið að koma eftir leikhús eða tónleika og í léttan rétt og glas af víni. Við erum með smáréttaseðil,“ segir Þrúður.

Þess má geta að á efri hæðinni er góð aðstaða fyrir hópa allt að 50 manns. Símon Ívarsson gítarleikari laðar þar fram ljúfa tóna allar helgar.

Sögulegt húsnæði

Í desember árið 2015 flutti Caruso í endurreist sögulegt hús í miðbænum sem var upphaflega byggt árið 1801. Stærsti hluti byggingarinnar, fyrir utan arininn, eyðilagðist í eldsvoða árið 2007 og má segja að nýja húsið hafi verið byggt í kringum arininn sem stóð uppi eftir eldsvoðann. „Húsið er nokkuð minna en það sem við vorum í áður, en afskaplega huggulegt og notalegt. Það er hálfpartinn eins og húsnæðið umvefji mann og staðsetningin er náttúrlega frábær,“ segir Þrúður, en Caruso hefur verið í eigu hennar og Jose Garcia í 20 ár.

Caruso er til húsa að Austurstræti 22, 101 Reykjavík.
Pantaðu borð í síma: 562-7335 eða í tölvupósti: caruso@caruso.is
Opnunartími:
Mánudagar–fimmtudagar: 11.30–22.30
Föstudaga: 11.30–23.30
Laugardaga: 12.00–23.30
Sunnudaga: 17.00–22.30
Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðu staðarins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum