fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
FókusKynning

Engar tvær veislur eru eins

Kynning

Culina veisluþjónusta

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 22. september 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mín sérstaða felst meðal annars í því að ég þjónusta margvíslega hópa. Þegar hópur fólks er samankominn er eðlilegt að einhver hluti af þeim hópi sé grænmetisætur og einhverjir séu með ýmiss konar fæðuóþol eða ofnæmi. Þá reyni ég að setja matseðlana saman með það fyrir augum að allir geti fengið það sem þeir vilja. Ég hef alltaf lagt mikla áherslu á að semja matseðlana með hverjum og einum þannig að engar tvær veislur eru alveg eins því kröfurnar og væntingarnar eru misjafnar, hóparnir eru misjafnir að samsetningu og maður reynir að endurspegla þetta í hverri veislu. Ég býð ekki upp á tilboð A, B eða C heldur er hver veisla einstök.“

Þetta segir Dóra Svavarsdóttir, eigandi veisluþjónustunnar Culina, en hún leggur mikla áherslu á að mæta sérþörfum allra og gera hverja og eina veislu einstaka:

„Það er líka mjög eðlilegt að veitingarnar endurspegli fólkið sem er að bjóða til veislu og mér finnst afskaplega gaman að vinna á þennan hátt með fólki, finna út uppáhaldsmatinn og spinna út frá því hvað hægt er að gera. Síðan eru það önnur tilefni eins og til dæmis árshátíðir eða haustfagnaðir á vinnustöðum, þá eru oft einhver þemu eða verið að búa til einhverja sérstaka stemningu í fyrirpartíinu. Þá er gaman að halda áfram með það út í gegnum matinn líka.“

Allt frá vegan upp í svínslæri

Um áherslur í matargerðinni almennt segir Dóra:
„Ég átti og rak á sínum tíma grænmetisstaðinn Á næstu grösum í tíu ár þannig að mínar rætur eru grænar. Culina býður vissulega upp á kjötrétti fyrir þá sem það vilja en þegar maturinn kemur frá okkur má samt alltaf búast við því að töluvert stærri hluti hans sé grænmeti en tíðkast hjá öðrum. Ég hef líka mikla reynslu af því að vinna í samráði við fólk sem hefur ýmiss konar fæðuofnæmi og get miðlað af þeirri reynslu. Mér finnst líka alveg glatað að fólk geti ekki borðað matinn í sinni eigin veislu og ég vil koma í veg fyrir slíkar uppákomur. Það er lágmarkskrafa. Það hefur verið mikil vakning í veganisma síðastliðin ár – þetta hefur alveg sprungið út – og undanfarið hef ég unnið með nokkrar veislur þar sem fólk hefur ákveðið að bjóða eingöngu upp á vegan-fæði. Ég hef afskaplega gaman af slíkum verkefnum. Á hinn bóginn hef ég líka verið með veislur þar sem í boði eru lambaskankar, svínslæri og fleira þvíumlíkt. Á endanum snýst þetta alltaf um óskir viðskiptavinarins.“

Aðspurð hvers konar veislum hún sinni mest núnar þegar haustið gengur í garð segir Dóra að haustfagnaðir og afmælisveislur séu tíð verkefni þessa dagana en síðan eru jólahlaðborðin framundan. Hún segir líka að það séu strax farnar að berast fyrirspurnir vegna fermingarveislna á næsta ári en það sé gott að skipuleggja veislur með góðum fyrirvara:

„Það gefur manni tíma til að koma með hugmyndir og henda boltanum á milli. Hvað á veislan til dæmis að kosta?
Kostnaðurinn er jafn misjafn og veislurnar eru margar. Þess vegna er gott að fólk sé búið að búa sér til ákveðinn ramma fyrirfram. Það er síðan hægt að laga veisluna að kostnaðarrammanum hverju sinni eða endurskoða kostnaðarrammann. Það er hægt að gera ýmislegt með góðu samtali og samvinnu. Þú færð auðvitað ekki humarhala og nautalundir fyrir klink en það er hægt að gera frábæra veislu úr ódýrara hráefni og vinna það öðruvísi.“

Til að panta veislu eða senda fyrirspurnir er best að hafa samband í gegnum netfangið dora@culina.is. Einnig má hafa samband í símanúmerið 892-5320. Síðan er gaman að skoða heimasíðuna, culina.is, þar sem finna má fróðlegar og aðgengilegar upplýsingar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum