fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Stórkostlegt útsýni og sælkeramatur á sanngjörnu verði

Kynning

SKÝ Restaurant & Bar

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 15. september 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

SKÝ Restaurant & Bar er staðsettur á 8. hæð CenterHotels Arnarhvols við Ingólfsstræti. Á veitingastaðnum er stórkostlegt útsýni yfir Faxaflóa, Esjuna, Hörpu og miðbæ Reykjavíkur. Útsýnið eitt gerir máltíð á SKÝ að einstakri upplifun.

„Við höfum verið að taka staðinn í gegn síðasta árið og betrumbæta, meðal annars með því að innrétta litla og kósý setustofu sem snýr í vestur með útsýni í átt að Hallgrímskirkju. Þarna fá gestir þá tilfinningu að þeir sitji heima í stofu,“ segir Elva Hjörleifsdóttir, forstöðumaður veitingasviðs hjá CenterHotels.

Elva Hjörleifsdóttir
Elva Hjörleifsdóttir

Að sögn Elvu er matseðillinn á SKÝ rómaður fyrir bæði gæði og sanngjarnt verð: „Matseðillinn okkar er á mjög samkeppnishæfu verði. Sem dæmi erum við með humarsalat sem hefur slegið í gegn en það kostar aðeins 2.850 krónur. Við bjóðum ávallt upp á ferskasta fisk dagsins og við leggjum mikla áherslu á úrvals hráefni. Þá bjóðum einnig upp á nokkra grænmetisrétti þannig að allir ættu að fá eitthvað við sitt hæfi.“

Humarsalat
Humarsalat

SKÝ er tilvalið fyrir litla og stóra hópa að koma saman í mat og drykk en staðurinn getur tekið á móti allt að 80 manns í einu. „Hópamatseðillinn er samsettur úr fjölbreyttum seðli þar sem boðið er upp á sex mismunandi þriggja rétta seðla sem hægt er að velja um. Hópaseðillinn miðast við tíu manns sem þarf að panta fyrirfram. „Við hvetjum auðvitað alla til að bóka tímanlega til að tryggja að laust sé fyrir hópinn.“

Fjallastélin bera nöfn fjallanna í kring

Sem fyrr segir er útsýnið á SKÝ með ólíkindum og framkallar hjá flestum hina svokölluðu „vá“ tilfinningu. Fjöllin sem umlykja borgina sjást vel út um gluggana en sérlagaðir kokteilar, Fjallastélin, bera nöfn þeirra. Hér er uppskrift að einu vinsælasta fjallastélinu:

Geirmundartindur
6 cl Bulldog gin
3 cl Basil – lime síróp
Hrist saman og skreytt með basil laufi

Geirmundartindur
Geirmundartindur

Þess má geta að Geirmundartindur er Fjallastél mánaðarins á SKÝ í september. Fjallastél mánaðarins eru ávallt á tilboði á aðeins 1.700 krónur.

Happy Hour er í boði alla daga frá kl. 16 til 18. Þá kostar bjór af krana 600 krónur og vínglas er á 900 krónur.
SKÝ hentar afskaplega vel fyrir fólk sem er að fara á tónleika eða leikhús enda staðsettur mitt á milli Hörpu og Þjóðleikhússins. Stefnt er að því að bjóða upp á sérstakan leikhúsmatseðil í vetur en nú þegar getur fólk sest að snæðingi á staðnum fyrir sýningar í nágrenninu. Barinn á SKÝ er opinn til 12 og því er líka tilvalið að kíkja inn eftir sýningar og fá sér drykk. Eldhúsið er hins vegar opið til 22 á kvöldin. „Það er líka gaman að njóta útsýnisins eftir að rökkva tekur því ljósin í Hörpu eru einstaklega falleg á kvöldin,“ segir Elva. Á fallegum vetrarkvöldum læðast oft norðurljósin fram líka.

SKÝ Restaurant & Bar er opinn alla daga frá kl. 11:30 til miðnættis. Síminn er 595-8545 og heimasíða er www.skyrestaurant.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum