fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Gæði og vönduð vinnubrögð

Kynning

JOMA pípulagnir

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 14. maí 2017 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

JOMA pípulagnir er rótgróið fyrirtæki sem var stofnað árið 1971 og sérhæfir sig í alhliða viðgerðum og breytingum í eldri húsum; sérstaklega í endurnýjun á skolpi og í drenlagningu í kringum hús. Jón Magngeirsson, pípulagningameistari og framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir fyrirtækið sinna bæði einstaklingum og fyrirtækjum.

Tryggja gæði

Hjá JOMA pípulögnum er verð ekki miðað við magntölur. „Þegar kemur að skolpverkefnum gerum við ávallt fast tilboð sem stendur alltaf; bara eitt fast verð og skriflegt tilboð. Verð helst því það sama í byrjun og lok verks,“ segir Jón. „Við notum aðeins PVC plaströr, þegar við skiptum út því gamla, sem eru sömu plaströr og eru sett í ný hús í dag,“ bætir Jón við. „Við erum afar vel tækjum búnir og getum því sinnt öllum þeim verkefnum sem koma inn á borð til okkar,“ segir hann í framhaldinu.

Vönduð vinnubrögð og afbragðs þjónusta

„Við leggjum mikið upp úr því að veita fyrirmyndar þjónustu og fagmennsku þegar kemur að vönduðum vinnubrögðum,“ segir Jón. „Við erum stundvísir og skilum af okkur verkum á tilsettum tíma. Jafnframt sinnum við viðskiptavinum strax,“ bætir hann við. Það er vert að segja frá því að allir starfsmenn Jóns hafa starfað hjá honum í um 10 ár og því góð reynsla og mikil þekking til staðar innan fyrirtækisins. Hægt er að panta þjónustu JOMA pípulagna með því að hringja í Jón í síma 892-4598 á kristilegum tíma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum