Fyrirtækið Lífræn matvæli heldur í dag kynningu á lífrænum hnetum frá sænska vörumerkinu Thisisnuts. Um er að ræða fyrsta flokks heilsuvöru sem slegið hefur í gegn erlendis en er ný á markaði hér.
Fyrir utan að vera einstaklega hollar eru lífrænu hneturnar frá Thisisnuts einstaklega bragðgóðar.
Hneturnar eru til í ótal bragðtegundum og myndirnar sem fylgja hér með sýna aðeins brot af þeim.
Kynningin í dag verður í World Class Laugum og stendur frá kl. 16 til 20. Allir eru velkomnir að skoða og bragða á fyrsta flokks lífrænum hnetum frá Thisisnuts.