fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
FókusKynning

Ferskur fiskur og mikið úrval af fiskréttum

Kynning

Fiskbúðin Sundlaugavegi 12

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 17. mars 2017 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fiskbúðin Sundlaugavegi 12 er ein elsta fiskbúðin á höfuðborgarsvæðinu en frá 1947 hefur verið fiskbúð í þessu húsnæði. Högni Snær Hauksson sér um rekstur búðarinnar á Sundlaugavegi og hefur starfað þar í sex ár. „Við erum með ferskan fisk daglega og mikið úrval af fiskréttum,“ segir Högni.

Bjóða upp á humarsúpu, plokkfisk og fiskibollur

„Við leggjum mikið upp úr að bjóða aðeins upp á ferskt hráefni og mikið úrval,“ segir Högni. „Það er líka gaman að segja frá því að við búum til okkar eigin humarsúpu á staðnum, plokkfisk og fiskibollur. Þegar kemur að plokkfisknum og bollunum þá notum við uppskriftir sem eru frá 1986 og hafa fylgt Fiskbúðinni Sundlaugavegi síðan þá,“ bætir hann við. „Þar af leiðandi hefur myndast hefð sem við ætlum okkur að halda við,“ segir hann.

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Tilbúnir fiskréttir

„Við bjóðum upp á fjölbreytta fiskrétti sem eru tilbúnir og þægilegir til eldunar,“ segir Högni. „Það ætti því að vera auðvelt fyrir alla að finna eitthvað við sitt hæfi. Auk þess er úrvalið af fiski yfirhöfuð mjög gott hjá okkur. Sem dæmi má nefna reykta ýsu, gellur, kinnar, þorsk, keilu, steinbít, lax, bleikju og margt fleira,“ segir Högni.

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Opið er mánudaga til fimmtudaga frá kl. kl. 09.00 til 18.30, föstudaga kl. 09.00 til 18.00 og laugardaga frá kl. 11.00 til 14.00. Högni sér til þess að Facebook-síða verslunarinnar er mjög virk og geta viðskiptavinir nálgast upplýsingar um ýmiss konar tilboð sem eru í gangi hverju sinni sem og um úrval fiskverslunarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum