Knattspyrnumaðurinn Jón Daði Böðvarsson og unnusta hans María Ósk Skúladóttir eignuðust sitt fyrsta barn, dóttur, í gær 1. febrúar.
Jón Daði segir frá gleðitíðindunum á Instagram og birtir mynd af dótturinni. „Þessi heilbrigða litla prinsessa kom í heiminn 1. febrúar, tveimur dögum eftir settan dag. Mamman var ótrúleg í fæðingunni og ég get auðveldlega sagt að ég er stoltur faðir og unnusti.“
https://www.instagram.com/p/BtYddwAB4xI/?utm_source=ig_embed
Fjölskyldan er búsett í Reading í Englandi, þar sem Jón Daði spilar með Reading í B-deildinni í enska boltanum.
Fókus óskar parinu innilega til hamingju með dótturina.