„Ég hef alltaf verið mjög stolt af syni mínum. Hann er traustur, heiðarlegur og með mjög sterka réttlætiskennd,“ segir Fanney Gunnarsdóttir, móðir Björns Levís Gunnarssonar, alþingismanns.
Björn Leví hefur farið mikinn í stjórnarandstöðu á yfirstandandi þingi. Sérstaka athygli hefur vakið spurningaflóð hans til framkvæmdavaldsins í fyrirspurnatímum þingmanna. Alls hefur Björn Leví lagt fram 78 fyrirspurnir á þinginu og hafa sumar vakið þjóðarathygli, til dæmis fyrirspurn hans varðandi hús-, dvalar- og aksturkostnað þingmanna sem varð til þess að þjóðfélagið fór á hliðina um tíma. Ekki eru þó allir á eitt sáttir en andstæðingar Björns Levís hafa sakað hann um að sóa skattpeningum með fyrirspurnaflóðinu.
Fanney hlær dátt þegar hún er spurð hvort Björn Leví hafi verið fróðleiksfúst barn. „Já, það er alveg hægt að segja það. Hann stóð sig afar vel í námi og ég sá hann eiginlega aldrei læra heima. Ég var ekkert að velta því of mikið fyrir mér fyrstu árin því einkunnirnar voru alltaf svo góðar,“ segir Fanney. Hún segist þó hafa spurt son sinn út í þetta þegar hann var tólf ára gamall og þá hafi hann sagst hlusta á kennarana í tíma og klára að læra þar. „Hann sagði að maður þyrfti bara að skilja hlutina. Það er mjög eftirminnilegt,“ segir Fanney.
Hún segir að Björn Leví hafi átt erfitt uppdráttar um tíma í skóla. „Hann hefur alltaf verið svolítið nörd og um tíma var það ekki líklegt til vinsælda. Þegar hann kom síðan í menntaskóla þá var allt í einu orðið töff að vera nörd og þá fór hann að blómstra,“ segir Fanney.